Atvinnu- og hafnasvið Reykjanesbæjar
Atvinnu- og hafnasvið fer með atvinnumál og málefni Reykjaneshafnar m.a. atvinnuþróun og athugun nýrra atvinnutækifæra s.s. á sviði verslunar og þjónustu, ferðamála, iðnaðar, orkumála, sjávarútvegs og heilbrigðisþjónustu. Reykjaneshöfn samanstendur af rekstri fimm hafnaraðstæðna, Njarðvíkurhöfn, Keflavíkurhöfn, smábátahöfn í Gróf, höfnin í Höfnum og stórskipa og olíuhöfn Helguvík. Einnig rekur Reykjaneshöfn ísverksmiðju í Njarðvíkurhöfn til að þjónusta báta og útgerðir. Hægt er að lesa nánar um Reykjaneshöfn á heimasíðu hafnarinnar www.reykjaneshofn.is
Atvinnu- og hafnarsvið hefur umsjón með uppbyggingu á iðnaðarsvæði Helguvíkur. Hægt er að skoða lóðaskipulag og sjá lausar atvinnulóðir á heimasíðu Helguvíkur, www.helguvik.is
Framkvæmdastjóri er Pétur Jóhannsson. Hann annast stjórn verklegra framkvæmda á atvinnusvæðum, úthlutun atvinnulóða, afgreiðslu atvinnumála og er jafnframt hafnarstjóri Reykjaneshafnar. Atvinnufulltrúi er Gísli H. Sverrisson, sem er jafnframt skrifstofustjóri Reykjaneshafnar.
Atvinnu- og hafnasvið er staðsett að Víkurbraut 11, 230 Reykjanesbær.
Sími atvinnuráðgjafa: 420 3230
Sími framkvæmdastjóra: 420 3222
Fax: 420 3229
Opið: virka daga frá kl. 8:00 - 17:00.
Netfang: petur.johannsson@reykjanesbaer.is
Atvinnuþróun
Reykjanesbær byggir á sex meginstoðum til atvinnuþróunar á svæðinu:
1. Að orka Reykjaness sé virkjuð skynsamlega. Að hér sé staðsett öflugt orkufyrirtæki sem býður samkeppnishæfa orku til heimila og fyrirtækja og er fært um að hafa góðan arð af sölu raforku til annarra byggðarlaga. Á þessum grunni verði hlúið að frekari jarðhitarannsóknum á svæðinu.
2. Að hér sé blómleg aðstaða fyrir þjónustu og verslun – Því er lífæðin frá Duus húsum eftir Hafnargötu og Njarðarbraut og inn á Fitjar í endurgerð, þar sem þegar eru um 200 fyrirtæki staðsett.
3. Að hér sé öflugt iðnaðarsvæði í Helguvík sem býður hentuga staðsetningu milli stórskipahafnar og alþjóðaflugvallar, með ljósleiðaratengingum og hagkvæmri raforku inn á svæðið.
4. Að byggt sé á þjónustu tengdri Keflavíkurflugvelli, m.a. ferðaþjónustu. Skapaður sé "segull" í ferðaþjónustu sem tryggi hlutverk Reykjanesbæjar í ferðaþjónustu landsmanna. Uppbygging Víkingaheims með Nausti Íslendings, Smithsonian safni og sögulsóðasýningu er miklvægt verkefni í þeim tilgangi.
5. Að hér sé áfram miðstöð varna þjóðarinnar og skoðaðir séu möguleikar á að styrkja þá starfsemi í breyttum heimi, s.s. tengt sjúkdómavörnum og skynsamlegri samþættingu verkefna á sviði öryggismála þjóðarinnar.
6. Að sveitarfélagið sé vakandi fyrir nýjum hugmyndum er aukið geta atvinnumöguleika .s.s í heilbrigðisþjónustu, íþróttum og háskólatengdri starfsemi.









.jpg?76x54;crop)

