Atvinnuhúsnæði í Helguvík

Framtíðaratvinnusvæði í iðnaði

Reykjanesbær mun fylgja eftir vel heppnaðri markaðssetningu Helguvíkur sem framtíðaratvinnusvæðis Reykjanesbæjar í iðnaði. Lagður hefur verið grunnur að framþróun fyrirtækja þar á næstunni.

Í Helguvík er athafnasvæði fyrir gámageymslur og vöru- og frystigeymslur. Iðnaðarlóðir hafa verið skipulagðar í nágrenninu til að uppfylla óskir út- og innflutningsaðila um kjöraðstöðu til uppbyggingar athafnasvæða. sjá www.helguvik.is
Helguvík er framtíðarhöfn fyrir þau fyrirtæki sem munu nýta sér þá miklu orku og möguleika sem HS orka býður upp á háhitasvæðinu á Reykjanesi.

Við Helgarvíkurhöfn hefur verið skapaður grunnur að fríiðnaðarsvæði, þar sem Helguvík bíður upp á kjör tengingar á sjó, landi og í lofti með Keflavíkurflugvöll í aðeins 4 km fjarlægð.

Helguvík er einnig olíuhöfn Suðurnesja með olíubryggju og birgðastöð. Fiskimjölsverksmiðja SR-Mjöls h.f. og flokkunarstöð Helguvíkurmjöls h.f. eru í NV enda Helguvíkur.

Innsigling er auðveld með miklu dýpi. Viðlegukantur er 150 m og dýpi 10m fyrir skip allt að 200m.

Fréttir