Heilbrigðisþjónusta

Reykjanesbær vill styrkja enn frekar stöðu heilbrigðisþjónustunnar. Byggja þarf áfram á þeim tækifærum sem góð sérfræðiþjónusta veitir og búa um hana sterka umgjörð. Miklir möguleikar eru til að skapa nýja þjónustu m.a.  heilsubótar- og lækningaferðir til Íslands þar sem t.d. Bláa lónið og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja væru virkjuð til þátttöku. Þannig má skapa fleiri áhugaverð störf í bænum um leið og þjónusta við íbúana verður fjölþættari og vandaðri.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Reykjanesbær mun vinna að bættri þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja við íbúa Reykjanesbæjar. Sérstaklega er mikilvægt að huga að virku heimilislæknakerfi fyrir eldri borgara og langsjúka, færa endurhæfingu heim í hérað og samræma þjónustu svo sem iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun.
Huga þarf að málefnum Alzheimer- sjúklinga og þjónustu þeim tengdum. Komið verði á fót litlu sambýli.


Sjá stærra kort

Fréttir