Reykjaneshöfn

Hafnir Reykjaneshafna


Keflavíkurhöfn er fiski-, skemmtiferðaskipa- og skemmtibátahöfn búin löndunarkrana. Þar á sér stað uppbygging fjölbýlishúsa við bryggjuna sem bjóða upp á skemmtilega tengingu búsetu, mannlífs að leik og starfi og atvinnulífs. 

Njarðvíkurhöfn er góð fiskibáta- og flutningahöfn, en hún þjónaði sem aðal gáma- og lausavöruflutningahöfn Varnarliðsins um árabil.  Mikið og gott laust atvinnusvæði er við höfnina sem býður upp á góða aðstöðu til uppbyggingar í fiskvinnslu og flutningaþjónustu.  Við Njarðvíkurhöfn er  staðsett ísverksmiðja, sem þjónustar skip og fiskvinnslur.

Grófin er smábátahöfn með löndunarkrana.  Þar er einstaklega góð aðstaða fyrir smábáta og ýmiskonar sjósport. Í nágrenni hafnarinnar í gróf eru m.a. Duushús þar sem m.a. er staðstett bátasafn Gríms Karlssonar.  Einnig eru þar ferðamiðstöð SBK,  veitingastaður, gistiheimili,  kertagerð og glerblástur sem og hin ýmsu þjónustufyrirtæki og verktakar.

Helguvík er olíu-flutningahöfn, fisklöndunarhöfn, lausavöru og gámaflutningahöfn.  Höfnin hentar mjög vel bæði til innflutnings og útflutnings.  Tenging hafnarinnar og nálægð við Keflavíkurflugvöll (4km) og sveitarfélög á suðurnesjum og höfuðborginni (45 mín akstur til Reykjavíkur). skapar einstaka breidd í þjónustutengingu hafnarinnar.  Mikil uppbygging á sér stað í iðnaðarsvæði Helguvíkur, m.a. er unnið að skipulagningu og uppbyggingu álvers Norðuráls á svæðinu, sem og margra þjónustu og iðnaðarfyrirtækja.  Hægt er að skoða lóðatilhögun og lausar lóðir á slóðinni www.reykjaneshofn.is  En þar eru enn lausar lóðir til iðnaðar- og þjónustuuppbygingar. 

Hafnir sem er bryggjukantur staðsettur í svæði hafna, en þar er ágætis aðstaða fyrri smábáta til skemmtisiglinga. 

Keflavíkurhöfn, Njarðvíkurhöfn og Helgúvíkurhöfn eru viðurkenndar farskipahafnir.

Almennar upplýsingar

Reykjaneshöfn KT: 410190-1099, Víkurbraut 11, 230 Reykjanesbær

Opið: virka daga frá kl. 8:00 - 17:00

Sími: 420 3220 Fax 420 3229
Bakvaktasími: 896 5571
Hafnarvörður: S: 420 3223    Bakvaktarsími.: 896 5572
Vigtar- og skrifstofumenn: 420 3220   Bakvaktarsími.: 896 5571
Ísafgreiðsla: 420-3220  Bakvaktarsími.:896 5571

netfang: reykjaneshofn@reykjaneshofn.is
veffang: www.reykjaneshofn.is
Hafnarstjóri: Pétur Jóhannsson.

    

 

 

 

 

Fréttir