Tækifæri fyrir ungt fólk í atvinnuleit
Atvinnutorg Suðurnesja er samstarfsverkefni á vegum Velferðarráðuneytisins, Vinnumálastofnunar, Reykjanesbæjar, Garðs og Sandgerðis. Tilgangur þess er að koma til móts við þann hóp sem stendur veikast í atvinnuleit sinni.
Atvinnutorg Suðurnesja er nýtt úrræði fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16 til 25 ára sem eru vinnufærir og þiggja fjárhagsaðstoð sér til framfærslu eða eru við það að missa bótarétt sinn hjá atvinnuleysistryggingasjóði. Hlutverk Atvinnutorgsins er að styðja við vinnufæra einstaklinga sem eru ekki virkir á atvinnumarkaði út í atvinnulífið eða frekara nám. Atvinnutorgið býður upp á atvinnutengd úrræði, t.d. vinnustaðanám eða tímabundna ráðningu.
Atvinnutorgið snýst ekki um fjárhagslegan ávinning heldur um tækifæri fyrir ungt fólk: til þess að kanna áhugasvið, öðlast færni í starfi og tengsl inn á vinnumarkaðinn. Markmið atvinnutorgsins er að einstaklingur þroski hugsun sína gagnvart vinnu eða námi. Kynnist fyrirtækjum, gildum þeirra, starfsemi og uppbyggingu. Einnig að einstaklingurinn öðlist færni í samskiptum og tækifæri til þess að þróa sinn eigin starfs- og námsferil.
Starfsmenn
- Guðrún Brynhildur Árnadóttir Sími: 420-3277
- Margrét Valsdóttir
Þú finnur okkur á Suðurgötu 15, 230 Reykjanesbæ - Sjá kort








.jpg?76x54;crop)

