Markmið barnaverndar er að tryggja börnum og ungmennum viðunandi uppeldisskilyrði með því að styrkja fjölskyldur og beita úrræðum til verndar einstaka börnum þegar það á við. Höfuðáhersla er lögð á samvinnu við foreldra hvað varðar stuðningsúrræði sem eru m.a.: ráðgjöf, sálfræðiaðstoð, tilsjón, stuðningsfjölskyldur, persónulegir ráðgjafar, vistun, fjárhagsaðstoð, húsnæðisaðstoð, heimaþjónusta ofl. Barnaverndarnefndar
Hér má finna barnarvernarlög á vef alþingis
Upplýsingar um símatíma og tímapantanir fást í þjónustuveri Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12 230 Reykjanesbæ og í síma 421 6700 Faxnúmer 421-4667
Neyðarsími utan skrifstofutíma: 112
Vert er að vekja athygli á ákvæði í barnaverndarlögum um tilkynningarskyldu almennings og þeirra sem hafa afskipti af börnum og ungmennum:
Sá sem verður var við að barni sé misboðið, uppeldi þess vanrækt eða aðbúnaði þess svo áfátt að barninu geti staðað hætta af skal tilkynna það barnavernd. Nafnleyndar gagnvart málsaðila er gætt sé þess óskað.
Haft er samband við fjölskyldu-og félagsþjónustuna í síma 421 6700 og óskað eftir sambandi við starfsmann barnaverndar til að koma barnaverndartilkynningu á framfæri.
Utan skrifstofutíma er hægt að hafa samband við Neyðarlínuna í síma 112 sem tekur á móti barnaverndartilkynningum allan sólarhringinn. Tilkynnandi getur óskað nafnleyndar gagnvart þeim sem tilkynnt er um nema sérstakar ástæður mæli gegn því.
Starfsmenn
Kolbrún Þorgilsdóttir ráðgjafi
María Gunnarsdóttir félagsráðgjafi
Sara Dögg Gylfadóttir félagsráðgjafi
Þórdís Elín Kristinsdóttir ráðgjafi
Tenglar
Barnaverndarstofa
Barnahús
Umboðsmaður barna
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Verndum bernskuna
Réttindi barna 0-18 ára

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







