Það er eitt af markmiðum Reykjanesbæjar að búa fjölskydunni sem þroskavænlegust skilyrði svo hún megi sem best styrkjast og eflast í fjölskylduvænu samfélagi. Það gerir Reykjanesbær með því að hlúa sérstaklega að barnafjölskyldum með fjölbreyttum hætti.
Umönnunargreiðslur
Markmið með umönnunargreiðslunum er að gefa fjölskyldum aukinn möguleika á samvistum á mikilvægu þroskaskeiði barnsins.
Einungis er hægt að sækja um umönnunargreiðslur á íbúavefnum Mitt Reykjanes.is og þurfa umsóknir að hafa borist fyrir 25. hvers mánaðar.
Sækja um umönnunargreiðslur
Upplýsingar um Mitt Reykjanes og umönnunargreiðslur eru veittar í þjónustuveri Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, síma 421 6700 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið umonnunargreidslur@reykjanesbaer.is. Nánari upplýsingar veitir Iðunn Ingólfsdóttir.
Þeir sem ekki hafa lykilorð geta hringt í þjónustuverið eða sent póst á mittreykjanes@reykjanesbaer.is.
Hægt er að velja um að fá lykilorðið sent í pósti eða netbanka.
Til þess að öðlast rétt á greiðslunum þurfa foreldrar að sækja kynningu á vegum Reykjanesbæjar innan þriggja mánaða frá því að greiðslur hefjast þar sem fjallað verður um grundvallaratriði í uppeldi barna og þjónusta Reykjanesbæjar kynnt.
Dagsetningar á kynningum í Íþróttaakademíunni 2012
Daggæsla í heimahúsum - Dagforeldrar
Daggæsla barna í heimahúsum er einn þáttur í dagvistarúrræðum. Skilyrði fyrir starfsleyfi eru í samræmi við reglugerð velferðaráðuneytisins um dagvist barna í heimahúsum og er bundið leyfi fjölskyldu- og félagsmálaráðs.
Upplýsingar veitir Hera Ósk Einarsdóttir félagsráðgjafi.
Upplýsingar um símatíma og tímapantanir fást í þjónustuveri Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12 230 Reykjanesbæ og í síma 421 6700 Faxnúmer 421-4667
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsum
Vefur dagforeldra á Suðurnesjum
Formaður Samtaka dagmæðra er Hulda Guðmundsdóttir
Umsókn um niðurgreiðslur til foreldra vegna daggæslu barna í heimahúsum
Foreldrar allra barna sem njóta þjónustu hjá dagforeldrum og eiga lögheimili í Reykjanesbæ eiga rétt á niðurgreiðslu dvalargjalds frá 16. mánaða aldri barns, þar til tilboð um leikskólapláss býðst.
Mánaðarlega skal sótt um niðurgreiðslu í gegnum Mitt Reykjanes fyrir 25. hvers mánaðar. Niðurgreiðslan greiðist beint til foreldra sem greiða sjálfir fullt gjald til dagforeldra.
Reglur um niðurgreiðslu til foreldra vegna daggæslu í heimahúsum.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







