Markmið með félagslegri aðstoð er að koma einstaklingum og fjölskyldum til aðstoðar í tímabundnum erfiðleikum. Fjölskyldu- og félagsmálaráð fer með stjórnun og framkvæmd félagsþjónustu í Reykjanesbæ samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Höfuðmarkmið eru að hjálpa fólki til sjálfsbjargar með ráðgjöf, upplýsingum og endurhæfingu svo og með nauðsynlegri fjárhagsaðstoð.
Upplýsingar um símatíma og tímapantanir fást í þjónustuveri Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12 230 Reykjanesbæ og í síma 421 6700 Faxnúmer 421-4667
Um fjárhagsaðstoð
Skylt er að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar.
Fjárhagsaðstoð til einstaklings getur verið allt að kr. 118.312 á mánuði og kr. 189.299 á mánuði til hjóna eða fólks í sambúð. Aðstoðin er óháð barnafjölda, þar sem reiknað er með að barnabætur, meðlög og barnalífeyrir mæti kostnaði vegna barna. Vaxtabætur og húsaleigubætur mæta mismunandi kostnaði vegna húsnæðis.
Þeir sem óska eftir ráðgjöf, upplýsingum eða fjárhagsaðstoð er bent á að hafa samband við þjónustuver Reykjanesbæjar í síma 421 6700 og panta tíma hjá félagsráðgjafa.
Fyrir hverja er þjónustan
Rétt á fjárhagsaðstoð eiga þeir sem eiga lögheimili í Reykjanesbæ og hafa tekjur undir kr. 118.312 á mánuði hjá einstaklingi og kr. 189.299 hjá hjónum eða sambúðarfólki.
Umsækjandi og maki/sambúðaraðili skulu einnig kanna til þrautar rétt til annarra greiðslna áður en leitað er eftir fjárhagsaðstoð, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga.
Njóti umsækjandi réttar til atvinnuleysisbóta skal hann nýta sér þann rétt og aðeins eiga rétt á mismun milli viðmiðunarmarka fjárhagsaðstoðar og atvinnuleysisbóta. Til þess að nýta sér þennan rétt þarf umsækjandi að framvísa launaseðli eða greiðsluyfirliti frá atvinnuleysistryggingasjóði.
Hafi viðkomandi ekki hafið atvinnuleit hjá Vinnumiðlun, án viðhlítandi skýringa, missir hann hlutfallslegan rétt til fjárhagsaðstoðar það tímabil.
Umsækjandi þarf að tilkynna um breytingar á tekjum og fjölskylduaðstæðum, en slíkar breytingar geta haft áhrif á rétt til fjárhagsaðstoðar. Fjárhagsaðstoð sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er alltaf endurkræf.
Fylgigögn með umsókn um fjárhagsaðstoð:
- Persónuskilríki
- Launaseðlar 3. síðustu mánaða áður en umsókn er lögð fram
- Yfirlit yfir tryggingabætur, lífeyrissjóðsgreiðslur, atvinnuleysisbætur ef við á
- Læknisvottorð ef við á
- Skattaframtal
- Álagningarseðill
- Skattkort og um viðskiptabanka, höfuðbók og reikningsnúmer
Öll fjárhagsaðstoð til framfærslu er skattskyld og af henni er reiknuð staðgreiðsla skatta. Þess vegna er nauðsynlegt að skila inn skattkorti.
Fjölskyldu og félagsmálaráð skipa:
Ingigerður Sæmundsdóttir (D) formaður
Björgvin Árnason (D)
Guðbjörg Á Sigurðardóttir (D)
Hannes Friðriksson (S)
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir (S)

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







