Verkefnastjóri forvarna er Hafþór Barði Birgisson Tómstunda- og félagsmálafræðingur
Netfang hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is
Forvarnarstefna Reykjanesbæjar er margþætt og byggir á samvinnu flestra þeirra aðila í bæjarfélaginu sem láta sig forvarnir varða. Forvarnastefna Reykjanesbæjar (pdf skjal)
Meginmarkmið forvarnastefnu sveitarfélagsins er að stuðla að auknu heilbrigði og hamingju barna, ungmenna og fullorðinna, þ.e. fjölskyldunnar í heild sinni, að skapa aðstæður sem eru líklegar til að hafa jákvæð áhrif og efla sjálfstraust og sjálfsmat barna og ungmenna og stuðla að betri menntun, öryggi á heimilum og bættum aðbúnaði og umhverfi barna og unglinga.
Sú víðtæka nálgun sem Reykjanesbær hefur gagnvart velferð og stuðningi við einstaklinga alla leið, kallar á gagnrýna skoðun á árangri sérhvers verkefnis og samhengi þess við aðra þjónustu sem er í boði. Þá er mikilvægt að meta hvað verður útundan í uppbyggingu þjónustunnar.
Hjá Reykjanesbæ er starfandi verkefnastjóri í forvörnum, helstu verkefni hans er að vinna að áætlanagerð í forvarnarmálum og halda utan um þau forvarnamál sem unnin eru hjá Reykjanesbæ og samstarfsaðilum. Einnig að fylgjast með því hvaða verkefni eru að skila árangri, hvað má betur fara og hvar þarf að bæta inn verkefnum. Verkefnastjóri í forvörnum vinnur þvert á öll svið bæjarins.
SAMTAKA-hópurinn í Reykjanesbæ er þverfaglegur samstarfshópur um forvarnir í Reykjanesbæ. Í honum eiga sæti fulltrúar foreldra, grunn-og framhaldsskóla, lögreglunnar, heilbrigðisstofnunar og Reykjanesbæjar.
Verkefni
Forvarnardagur ungra ökumanna er: Forvarnardagurinn
Forvarnardagur forsetans.Taktu þátt!
Forvarnardagurinn var í fyrsta sinn haldinn árið 2006 undir kjörorðinu „Taktu þátt! Hvert ár skiptir máli.“ Hann er haldinn að frumkvæði forseta Íslands en aðrir aðstandendur eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og lyfjafyrirtækið Actavis sem er aðalstuðningsaðili verkefnisins.
Á Forvarnardaginn er lögð megináhersla á að koma því til skila sem áratugalangar rannsóknir íslenskra fræðimanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík hafa sýnt að skili mestum árangri í forvörnum gegn fíkniefnum:
1. Að foreldrar og ungmenni verji sem mestum tíma saman.
2. Að börn og unglingar taki þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.
3. Að ungmenni fresti því sem lengst að hefja neyslu áfengis.
Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar.
Barnið komið heim, upplýsingar á netfangið barnidheim@reykjanesbaer.is
Tenglar
Lýðsheilsustöð
Lundur forvarnarverkefni
Rannsókn og greining ehf
Rannsóknir og skýrslur
Ungt fólk 2010
Framhaldsskólanemar
Félagsleg staða 16-20 ára ungmenna á Íslandi sem ekki stunda nám við framhaldsskóla árið 2009
Hagir og líðan nemenda í 5. - 7. bekk 2009








.jpg?76x54;crop)

