Húsaleigubætur eru greiddar skv. lögum og reglum sem félagsmálaráðuneyti setur. Bæturnar eru greiddar út eftirá og þurfa umsóknir að hafa borist fyrir 15. mánaðar.
Reikniforrit fyrir húsaleigubætur
Húsnæðisfulltrúi er Sigurbjörg Gísladóttir
Upplýsingar um símatíma og tímapantanir fást í þjónustuveri Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ og í síma 421 6700 Faxnúmer 421-4667
Hverjir eiga rétt?
Þeir leigjendur eiga rétt á húsaleigubótum sem leigja íbúðarhúsnæði til búsetu og eiga þar lögheimili. Uppfylla þarf eftirtalin skilyrði varðandi húsnæðið:
- Íbúðarhúsnæðið skal vera skilgreint sem íbúðarhúsnæði hjá byggingarfulltrúa.
- Íbúðarhúsnæðið verður að vera a.m.k. eitt svefnherbergi ásamt séreldhúsi eða eldunaraðstöðu og sérsnyrtingu og baðaðstöðu. Ekki eru greiddar húsaleigubætur vegna leigu á einstaklingsherbergjum eða ef eldhús eða snyrting er sameiginleg fleirum.
Undanþegnir ofangreindu eru fatlaðir einstaklingar á sambýlum og námsmenn á framhalds- og háskólastigi sem leigja herbergi á heimavist eða á stúdentagörðum.
Hverjir eiga ekki rétt?
Þrátt fyrir að almenn skilyrði bótaréttar séu uppfyllt þá er réttur til húsaleigubóta ekki fyrir hendi í eftirfarandi tilfellum:
- Ef húsnæðið sem um ræðir hefur verið skilgreint hjá byggingarfulltrúa sem iðnaðar-, verslunar- eða skrifstofuhúsnæði eða bílskúr.
- Ef íbúð er í bílskúr og hefur ekki verið samþykkt af byggingarfulltrúa.
- Ef leigusali og umsækjandi, eða einhver sem býr með umsækjanda, búa í sama húsi og eru skyldmenni í beinan legg.
- Ef umsækjandi eða einhver, sem í húsnæðinu býr með honum, nýtur réttar til vaxtabóta.
- Ef leigusamningur er til skemmri tíma en 6 mánaða.
Umsókn
Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn, ath. skila þarf umsókn fyrir 15. dag fyrsta greiðslumánaðar:
- Afrit af síðasta skattframtali staðfest af skattstjóra, staðgreiðsluyfirlit RSK.
- Launaseðlar þriggja síðustu mánaða allra heimilismanna
- Frumrit þinglýsts leigusamnings á staðfestu samningseyðublaði félagsmálaráðuneytis eða Íbúðarlánasjóðs. Þetta ákvæði á ekki við um félagslegar leiguíbúðir.
- Staðfesting skóla um nám barna umsækjanda sem eru eldri en 20 ára og stunda nám í sex mánuði eða lengur á árinu
- Staðfesting á lögheimili í íbúð frá Hagstofu Íslands eða útprentað úr þjóðskrá
ATH. UMSÓKN ER EKKI AFGREIDD FYRR EN FYLGIGÖGN HAFA BORIST
Þarf að endurnýja umsókn?
Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka. Umsækjendur þurfa að endurnýja umsókn sína fyrir 15. janúar ár hvert til þess að greiðslur falli ekki niður.
Áhrif tekna og eigna á fjárhæð húsaleigubóta
Bætur skerðast óháð fjölskyldustærð í hverjum mánuði um 1% af árstekjum umfram 2 millj. kr. samkvæmt reglugerð um húsaleigubætur.
Hvernig eru húsaleigubætur greiddar út?
Húsaleigubætur eru eftirágreiddar og koma til greiðslu frá og með þeim mánuði sem réttur til bóta hefur verið staðreyndur. Bætur eru greiddar út mánaðarlega eigi síðar en 5. dag hvers mánaðar.
Félagslegt húsnæði
Umsóknir um félagslegt húsnæði skulu lagðar inn hjá húsnæðisfulltrúa. Við mat á umsóknum um húsaleigubætur og félagslegt húsnæði er höfð hliðsjón af reglum þar um, þar sem m.a. er tekið mið af tekjum, eignum og fjölskyldustærð.
Til að geta sótt um félagslegt húsnæði í Reykjanesbæ þarf viðkomandi að hafa haft lögheimili hjá bæjarfélaginu í a.m.k. eitt ár.
Úthlutun félagslegra leiguíbúða fer fram hjá Fjölskyldu- og félagsmálaráði í umboði Fasteigna Reykjanesbæjar ehf.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







