Málefni fatlaðs fólks

Liðveisla, akstur og geðræktarmiðstöð

Þjónusta við fatlað fólk er nú alfarið á ábyrgð sveitarfélagsins en svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra voru lagðar niður í árslok 2010.
Fatlað fólk nýtur allrar almennar þjónustu sem Reykjanesbær veitir. Auk þess er í boði ýmis sértæk þjónusta í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks sem miðar að því að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífi.

Liðveisla
Akstur
Stuðningsfjölskyldur
Skammtímavistun
Hæfing
Björgin
Búsetuþjónusta

Upplýsingar um símatíma og tímapantanir fást í þjónustuveri Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12 230 Reykjanesbæ og í síma 421 6700 Faxnúmer 421-4667
 

Starfsmenn í málefnum fatlaðs fólks eru:

Liðveisla

Þeir sem eiga rétt á liðveislu eru fatlaðir einstaklingar 6 – 67 ára. Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun.

Akstur

Markmið ferðaþjónustu fatlaðs fólks er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda.

Stuðningsfjölskyldur

Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka fatlað barn í umsjá sína í skamman tíma í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu þess og veita barninu tilbreytingu. Stuðningsfjölskyldan hefur barnið í umsjón sinni að jafnaði tvo sólarhringa í mánuði. Dvöl hjá stuðningsfjölskyldu er samningsbundin til ákveðins tíma.

Skammtímavistun

Markmið skammtímavistunar er að bjóða upp á tímabundna dvöl til að létta álagi af fjölskyldum og veita börnunum/ungmennunum sjálfum tilbreytingu. Þessi þjónusta stuðlar að því að börnin/ungmennin geti búið sem lengst í foreldrahúsum. Lengd dvalartíma er breytileg eftir fötlun og aðstæðum hverju sinni en algengt er að hann sé 2- 4 sólarhringar í mánuði.

Skammtímavistun fyrir Suðurnesin er staðsett að Heiðarholti 14- 16 í Garði.
Sími 423-7460
heidarholt@sandgerdi.is
Forstöðumaður: Katrín Júlía Júlíusdóttir

Hæfing

Markmið hæfingar er að auka hæfni fatlaðs fólks til starfa og að taka þátt í daglegu lífi. Í hæfingu eru þjónustunotendur búnir undir að takast á við viðfangsefni utan heimilis sem og störf á almennum vinnumarkaði eða í verndaðri vinnu.

Hæfingarstöðin er staðsett að Hafnargötu 90 í Reykjanesbæ
Sími 420-3250
haefingarstodin@reykjanesbaer.is
Forstöðumaður: Fanney Steinunn Sigurðardóttir.

Björgin

Björgin - Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er endurhæfingarúrræði fyrir fullorðið fólk með geðheilsuvanda. Þjónustan skiptist í athvarf - endurhæfingu - eftirfylgd.

Björgin er staðsett að Suðurgötu 12 og 15 Reykjanesbæ
Sími 420-3270
bjorgin.is
Forstöðumaður: Hafdís Guðmundsdóttir.

Búsetuþjónusta

Fötluðu fólki stendur til boða ýmis úrræði og þjónusta í búsetumálum. Um er að ræða heimili með sólarhringsþjónustu og einnig þjónustu sem aðlöguð er að mismunandi þörfum fólks sem býr sjálfstætt. Þjónustan miðar að því að styðja fatlað fólk í daglegu lífi þeirra, virkja það til þátttöku í samfélaginu og styrkja það til að hafa áhrif á eigið líf. Val um búsetuúrræði fer eftir óskum og þörfum einstaklingsins og aðstandenda hans í samráði við Reykjanesbæ.

Sólarhringsþjónusta er veitt á þremur heimilum fatlaðs fólks í Reykjanesbæ. Auk þess fá fjölmargir einstaklingar mismikla þjónustu og stuðning á heimilum sínum víðs vegar um bæinn.
 

Fréttir