Fjörheimar

Sími 421 8890 - netfang hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is Forstöðumaður er Hafþór Birgisson tómstundafulltrúi
fjorheimar.is

Félagsmiðstöðin Fjörheimar hefur flutt aðsetur sitt frá Ásbrú að Hafnargötu 88 í sama húsnæði og 88 Húsið (beint á móti Pósthúsinu). 
Félagsmiðstöðin er einkum ætluð unglingum í 8.- 10. bekk og þjónar hún öllum grunnskólum bæjarins.
Opið er á mánudags og miðvikudagskvöldum frá 19.30 - 21.30. Að auki er opið annaðhvert föstudagskvöld frá 20.00 til 23.00. Allir viðburðir eru auglýstir á fjorheimar.is kvöldin eru skipulögð í samráði við Fjörheimaráð, en það er skipað fulltrúum úr grunnskólum Reykjanesbæjar.

Þess má geta má geta að starfsfólk Fjörheima og 88 Hússins sjá um ballskák eldriborgara sem fer fram í Virkjun á mánudags og fimmtudagsmorgnum frá 09.00 - 12.00 og Boccia sem fer fram á miðviku- og föstudögum klukkan 10.00 og er haldið í íþróttahúsinu að Ásbrú.

Að auki nota ýmsir aðilar Fjörheima svo sem Nes (starf fyrir fatlaða), Hjálpræðisherinn, bekkjakvöld fyrir grunnskóla og margt fleira:)

Hafþór Birgisson tómstundafulltrúi situr í Samtakahópnum sem er forvarnarhópur á vegum Reykjanesbæjar, fjölmenningarhóp, öryggisnefnd Ljósanætur og Samstökum félagsmiðstöðva á Suðurnesjum svo eitthvað sé nefnt.

Hafþór tómstundafulltrúi hefur jafnframt séð um fræðslu um ábyrga og jákvæða internetnotkun og fræðslu um skaðsemi reykinga í grunn-og fjölbrautarskólanum.

Fjörheimar eru leigðir út undir afmæli. Verð fyrir leigu á staðnum er 7.000, nánari upplýsingar og pantanir eru á fjorheimar@reykjanesbaer.is

Fréttir