Íþróttavellir
Knattspyrnuvöllurinn í Keflavík
Sunnan Skólavegar og vestan Hringbrautar er löglegur grasvöllur með áhorfendastæðum og stúku. Við völlinn er upphitaður og upplýstur 500 metra hlaupa/göngu hringur.
Við Hringbraut er upphaflegt íþróttarvallarhús sem var félagsaðstaða Íþrótta- og ungmennafélagsins í Keflavík. Nýtt félagsheimili hefur verið tekið í notkun á efri hæð Íþróttahússins við Sunnubraut. Sími í félagsheimilinu er 421-3044 og 897-5204
Knattspyrnuvöllurinn í Njarðvík
Æfinga- og keppnisvöllur UMFN er fyrir ofan Reykjaneshöll og er í umsjá UMFN
Æfinga- og keppnissvæði
Við Iðavelli er æfinga- og keppnissvæði og er stærð þess 22 þúsund fermetrar. Auk þess er 20 þúsund fermetra æfingasvæði vestan Reykjaneshallar. Við alla fimm grunnskólanna eru upphitaðir, afgirtir og upplýstir sparkvellir með gervigrasi. Við Stapagötu er sparkvöllur af stærðinni 60 x 60 metrar.
Nokkur opin grassvæði hafa verið notuð sem sparkæfingarsvæði hafa verið notuð sem sparksvæði fyrir yngri kynslóðina. Má þar nefna Stapatún, Sjávargötutún, Mávabrautavöll og Eyjabyggðavöll. Einnig er sparkvöllur í Höfnum.
Körfuknattleiksvellir
Við alla grunnskóla bæjarins eru körfuboltakörfur. Auk þess má finna körfur víða í bæjarfélaginu, s.s. í Grænási, Vatnsholti og Stapagötu. Ný gerð körfuboltavalla eru við Holtaskóla, Njarðvíkurskóla og Akurskóla en þeir vellir eru lagðir plastefni sem gerir það að verkum að hljóð berst síður af vellinum auk þess sem auðveldara er að leika á þeim í bleytu. Við vellina eru jafnframt hágæða körfur.
Púttvellir
Við Mánagötu eru tveir 18 holu vellir. Umsjónaraðili samkvæmt samningi við ÍT svið er Golfklúbbur Suðurnesja
Sleðabrekka á Kambi
Sleðabrekka er við hólinn Kamb í Dalshverfi. Þar í grennd eru jafnframt skemmtileg leiktæki fyrir alla aldurshópa.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







