Íþróttaminjasafn Reykjanesbæjar er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Safnið er tvískipt; annars vegar gamlir verðlaunagripir og íþróttaáhöld og hins vegar varðveisla á íþróttaviðburðum á Suðurnesjum, gömlum og nýjum.
Gerður hefur verið samningur um að yfirfæra gamlar kvikmyndir af íþróttaatburðum á myndbönd.
Munir safnsins eru til sýnis í anddyri Sundmiðstöðvar Keflavíkur. Íþróttaminjasafn Reykjanesbæjar óskar eftir munum og myndum til varðveislu sem tengjast íþróttasögu í Reykjanesbæ og félögum sem áður tengdust Keflavík, Njarðvík og Höfnum.
Munirnir verða varðveittir í Byggðasafni Reykjanesbæjar en vitað er að fjölmargir vilja gefa safninu myndir, úrklippubækur, verðlaunagripi og verðlaunapeninga svo eitthvað sé nefnt.
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Sigrúnu Ástu Jónsdóttur , forstöðumann Byggðasafnsins í síma 865 6160 eða á netfangið byggdasafn@reykjanesbaer.is







.jpg?76x54;crop)


