Tómstundir eldri borgara

Billiard, boccia, leikfimi, dans og margt fleira

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar skipuleggur tómstundastarf eldri borgara utan Nesvalla.
Hafþór Birgisson tómstundafulltrúi sér um billiard og boccia fyrir eldri borgara. Sími 8981394 og netfang hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is.

Billiard eldri borgara er í Virkjun kl 9:00 -12:00 á mánudögum og fimmtudögum. Boccia er á miðvikudögum og föstudögum klukkan 10:00 í íþróttahúsinu að Ásbrú.

Ása Eyjólfsdóttir er umsjónarmaður tómstundastarfs innan Nesvalla. Netfang asa.eyjolfsdottir@reykjanesbaer.is.

Félag eldri borgara á Suðurnesjum FEB
Staðsetning: Nesvellir
Formaður: Eyjólfur Eysteinsson
Viðtalstími: miðvikudagar kl. 11:00 - 12:00
sími: 420 3400
Netfang: eye@simnet.is og  febs@simnet.is

Félag eldri borgara á Suðurnesjum er frjáls félagsskapur fyrir 60 ára og eldri. Allt starf er unnið af félagsmönnum í sjálfboðavinnu. Eldri borgarar eru hvattir til þess að skrá sig í félagið.

Þjónustumiðstöðin á Nesvöllum er félagsmiðstöð Félags eldri borgara (FEB) og er dagskrá þess unnin af félaginu og Tómstundastarfi eldri borgara í Reykjanesbæ.
Boðið er upp á tómstundastarf við allra hæfi.

Eldeyjarkór FEB
Æfingar: Ytri - Njarðvíkurkirkja
Tími: kl. 15:30 á þriðjudögum
Formaður: Garðar Sigurðsson.

Púttklúbbur Suðurnesja
Staðsetning: HF Keflavík alla virka daga kl 13:00
Formaður: Hafsteinn Guðnason

Félagsvist
Staðsetning: Ytri - Njarðvíkurkirkja
Tími: annar hver fimmtudagur kl 20:00
Umsjón: Lionsklúbburinn í Njarðvík

Fréttir