Menning

Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
sími 421 6700, skrifstofa opin virka daga 9:15 - 15:30


Bryggjuhús

Menningarmál heyra undir menningarsvið Reykjanesbæjar. Menningarsvið starfar í umboði menningarráðs Reykjanesbæjar sem er stefnumarkandi og ráðgefandi á sviði menningarmála í Reykjanesbæ.

Framkvæmdastjóri menningarsviðs er Valgerður Guðmundsdóttir.

Menningarsvið starfar eftir menningarstefnu Reykjanesbæjar.

Meðal helstu verkefna menningarsviðs er rekstur eftirtalinna menningarstofnana í bæjarfélaginu:

Bókasafn Reykjanesbæjar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Listasafn Reykjanesbæjar
Menningar- og listamiðstöðin Duushús
Víkingaheimar
 

Menningarsvið hefur einnig umsjón með hátíðahaldi og margvíslegum menningarviðburðum í sveitarfélaginu.

Menningarsvið styður við og sinnir samstarfi við starfandi menningarfélög og -samtök í sveitarfélaginu með margvíslegum hætti.

Menningarráð veitir árlega styrki úr menningarsjóði til hópa og einstaklinga.

 

 

Fréttir