Listaskóli og fræðsla

Tækifæri til listsköpunar barna


Sumarstarf Listaskólinn hefur undanfarin ár staðið fyrir þriggja vikna sumarnámskeiðum fyrir börn á aldrinum 7 - 13 ára í samstarfi við Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ og Leikfélag Keflavíkur.

Höfuðstöðvar þeirra námskeiða eru í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2 og í Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17. Í Svarta pakkhúsinu er lögð áhersla á myndræna tjáningu á fjölbreytilegan hátt. Í Frumleikhúsinu er leikræn tjáning hins vegar í fyrirrúmi. Þar setja börnin upp leikþætti, dansa, syngja og segja frá.

Hverju námskeiði lýkur með Listahátíð í Frumleikhúsinu þar sem foreldrum og öðrum gestum er boðið að sjá afrakstur starfsins.

Vetrarstarf Listaskólinn hefur gert tilraunir til vetrarstarfs í námskeiðsformi þar sem boðið er upp á afmörkuð viðfangsefni fyrir smærri hópa á aldrinum 10 - 16 ára. Þau námskeið eru auglýst sérstaklega í svæðisfjölmiðlum.


Listaskólinn
listaskolinn@reykjanesbaer.is

Fréttir