Duushúsin
Duushúsin standa við smábátabryggjuna í Grófinni og eru röð nokkurra áfastra húsa frá mismunandi tímum, það elsta frá 1877 og það yngsta frá 1970, og einu stöku húsi. Þar er starfrækt Menningarmiðstöð Reykjanesbæjar sem hýsir m.a. sýninguna Bátafloti Gríms Karlssonar ásamt sjóminjum frá Byggðasafni Reykjanesbæjar. Í Gryfjunni eru settar upp styttri sýningar á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar. Í lok mars 2009 opnaði þar sýningin Völlurinn sem fjallar um samskipti bæjarbúa við erlent herlið. Sú sýning stendur til 2011. Fjölbreyttar myndlistarsýningar eru haldnar í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar sem staðsettur er í húsunum og í Bíósal eru haldnir tónleikar ásamt ýmsum öðrum menningartengdum viðburðum. Sýningarsalirnir eru opnir virka daga frá kl. 11.00-17.00 og um helgar frá kl. 13.00 -17.00. Aðgangur er ókeypis.
Bryggjuhúsið er elsta húsið í Duushúsalengjunni og það merkasta. Það var byggt 1877 af Hans Peter Duus, dönskum kaupmanni. Húsið er mjög stórt á þeirra tíma mælikvarða, 250 m2 að grunnfleti og alls þrjár hæðir. Mikið er eftir af upprunalegu efni í húsinu sem eykur varðveislugildi þess. Allar áætlanir miðast að því að gera húsið upp í upprunalegari mynd en þó með það fyrir augum að húsið geti hýst fjölbreytta menningarstarfsemi.
Bíósalurinn er byggður 1890. Hann telst einn elsti bíósalur landsins, en sagnir eru um bíósýningar rétt upp úr aldamótunum 1900, og er bíóloftið enn til staðar í salnum. Grunnflöturinn er ca. 160 m2 og er húsið á einni hæð. Húsið hefur verið endurbyggt sem bíósalur en hann er einnig mikið nýttur fyrir tónleika og aðra menningartengda viðburði.
Gamla búð stendur stök, beint á móti húsalengjunni. Hún var byggð árið 1870 af fyrrnefndum Hans Peter Duus og var þar m.a. rekin verslun eins og heiti hússins gefur til kynna. Húsið er helst merkilegt fyrir þær sakir að það hefur haldist að mestu óbreytt frá fyrstu tíð og er ætlunin að gera það upp í upprunalegri mynd. Grunnflötur hússins er er ca. 80 m2, tvær hæðir og lítill kjallari. Hugmyndir um framtíðarnotkun hússins tengjast menningarlífi bæjarins.
Fischersbúð var reist árið 1881 og stendur á horni Vesturgötu og Hafnargötu. Það kom tilsniðið frá Danmörku og þótti á sínum tíma eitt reisulegasta hús bæjarins. Húsið er tvílyft bindingsverkshús með valmaþaksrisi á hlöðnum grunni. Grunnflötur hússins er ca. 170 m2 og er húsið tvær hæðir með risi og kjallara undir syðri endanum. Í þessu húsi var rekin verslun og einnig bjó kaupmaðurinn sjálfur í húsinu. Enn þann dag í dag er rekin þar verslun á vegum Handverksfélagsins Bjargar. Húsið þarfnast verulegrar endubyggingar og mun framtíðarnotkun þess tengjast menningarlífi bæjarins.
Svarta pakkhúsið er steinsteypt hús á tveimur hæðum sem stendur við Hafnargötu 2. Húsið var byggt árið 1971 sem beitningarhús og er grunnflötur hvorrar hæðar ca. 240 m2. Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ er með sýningarsal og vinnuaðstöðu á neðri hæðinni en á efri hæðinni er ætlunin að koma upp sýningarsal á vegum Listasafns Reykjanesbæjar. Félag myndlistarmanna hefur undanfarin ár rekið sumargallerí í húsinu og þar eru einnig haldin námskeið allan veturinn.
Frumleikhúsið er á neðri hæðinni á Vesturbraut 17. Leikfélag Keflavíkur rekur leikhúsið samkvæmt samningi við Reykjanesbæ og hefur þar gott sýningar- og æfingahúsnæði í ca. 600 m2. Húsið er í góðu ástandi og er vel búið að öllu leyti. á efri hæð hússins er félagsheimili Karlakórs Keflavíkur.
Vatnsnes er hús í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar sem staðsett er á Vatnsnesvegi 8. Húsið er byggt 1934-6 og er steypt. Húsið var gefið á sínum tíma til Keflavíkurbæjar til safnastarfsemi og voru þar til skamms tíma almennar sögusýningar og geymslur á vegum Byggðasafnsins. Húsið hefur verið endurnýjað að utan en nú fara fram viðgerðir á því innan dyra og eru því sýningar í húsinu lokaðar sem stendur.
Njarðvík er lítið bárujárnsklætt timburhús í Innri Njarðvík sem byggt var í byrjun 20. aldar. Húsið var gefið til Njarðvíkurbæjar á 8. tug síðustu aldar til safnastarfsemi. Þar er nú sýning á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar, aðallega myndir og innanstokksmunir frá síðustu íbúum. Húsið er opið eftir samkomulagi, uppl. í síma 421 6700.
Stekkjarkot í Innri Njarðvík er tilgátuhús sem reist var árið 1993, fjósi var svo bætt við sumarið 2002. Þarna hafði áður staðið gömul sjóbúð að upplagi frá 1856 en yngsti hluti frá fyrri hluta 20. aldar. Húsin eru í góðu standi og ætlunin er að hafa þau opin fyrir ferðamenn og minni háttar móttökur. Nú er Stekkjarkot opið eftir samkomulagi, uppl. í síma 421 6700.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







