Ljósahús

Frá árinu 2000 hefur Reykjanesbær staðið fyrir leiknum Ljósahús Reykjanesbæjar þar sem veittar eru viðurkenningar fyrir jólaskreytingar utandyra á aðventu.

Veittar eru viðurkenningar í flokkunum:
Ljósahús 1. - 3. sæti
Fallegasta skreytta raðhúsið
Fallegasta skreytta fjölbýlishúsið
Fallegasta heildarmynd götu
Fallegasti jólaglugginn

Einnig hafa verið veittar viðurkenningar fyrir sérstakt jólahús.

Íbúar geta komið tilnefningum til skila á netfangið ljosahus@reykjanesbaer.is en sérstakar dómnefndir taka afstöðu til þeirra.

Verðlaunahafar

Fréttir