Menningar-, og fjölskylduhátíðin Ljósanótt í Reykjanesbæ er haldin árlega fyrstu helgina í september.
Dagskráin þessa hátíðardaga er fjölbreytt og sniðin að þörfum allrar fjölskyldunnar.
Hátíðin er haldin í lok sumars ár hvert og lýkur ávallt með lýsingu Bergsins og glæsilegri flugeldasýningu.
Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni og framboð menningarviðburða sem er rauði þráður hátíðarinnar hefur aukist ár frá ári jafnt og gestafjöldi.
Áhersla er lögð á viðamiklar uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum.
Tónlistin leikur stórt hlutverk á Ljósanótt í rokkbænum Reykjanesbæ og má þar nefna samkeppni um Ljósalagið. Boðið er upp á alls konar tónlist: blús, klassík, rokk og sjómannalög svo eitthvað sé nefnt.
Fjöldi myndlistarmanna sýnir verk sín víðs vegar um bæinn auk þess sem gallerý og vinnustofur listamanna eru opnar. Á Listasafni Reykjanesbæjar og í sýningarrýminu Suðsuðvestri eru ávallt áhugaverðar sýningar. Einnig má nefna skemmtidagskrá á sviði, götuleikhús, púttmót, fornbíla, bifhjól og ótal margt fleira.
Frekari upplýsingar um dagskrá ljósanætur er að finna á ljosanott.is
Menningarsvið hefur umsjón með hátíðinni en framkvæmdastjóri þess er Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi sem jafnframt er verkefnastjóri hátíðarinnar, netfang valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is / ljósanott@reykjanesbaer.is
Ljósanæturnefnd hefur umsjón með framkvæmd og dagskrá hátíðarinnar en hana skipa:
Framkvæmdastjórar sviða Reykjanesbæjar.
Með ljósanæturnefnd starfar öryggisráð en í því eiga sæti fulltrúar lögreglu, björgunarsveitarinnar, fjölskyldu- og félagsþjónustu og fl.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







