Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar, Skólavegi 1, annast málefni fræðslusviðs.
Sími 421 6700 / bréfasími 421 4667
Fræðslustjóri: Gylfi Jón Gylfason
Leikskólafulltrúi: Ingibjörg Hilmarsdóttir
Skólafulltrúi grunnskóla:Brynja Árnadóttir,
Sérfræðiþjónusta
Deildarstjóri: Gyða M. Arnmundsdóttir
Aðrir starfsmenn eru:
Agnes Björg Tryggvadóttir, sálfræðingur
Dröfn Rafnsdóttir, kennsluráðgjafi grunnskóla
Erla Björg Birgisdóttir, sálfræðingur
Gyða M Arnmundsdóttir, deildarstjóri sérfræðiþjónustu og sérkennslufulltrúi grunnskóla
Hafdís Garðarsdóttir, kennsluráðgjafi grunnskóla
Ingibjörg Sigríður Hjartardóttir, sálfræðingur
Ingibjörg Hilmarsdóttir, sérkennslufulltrúi leikskóla
Kristinn Hilmarsson, talmeinafræðingur
Sigurður. Þ Þorsteinsson, yfirsálfræðingur
Hlutverk Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar
Fræðsluskrifstofan annast stjórnsýslu, rekstur og þjónustu vegna uppeldis- og menntamála bæjarfélagsins. Fræðslustjóri er forstöðumaður fræðsluskrifstofu.
Markmið Fræðsluskrifstofu er að búa yfir sem víðtækastri sérfræðiþekkingu þannig að hún nái að veita kennslufræðilega og sálfræðilega ráðgjöf og aðstoð við umbóta- og þróunarstarf í grunnskólum og leikskólum samkvæmt skólastefnu Reykjanesbæjar.
Fræðsluskrifstofa hefur umsjón með rekstri, áætlunargerð og sérfræðiþjónustu fyrir leikskóla, grunnskóla og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Skrifstofan fer með úrvinnslu launaskýrslna fyrir grunnskóla bæjarins og veitir aðstoð á sömu sviðum við skóla í nágrenni.
Fræðsluskrifstofa annast sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla Reykjanesbæjar sem og grunnskóla í nágrannabyggðarlögunum sem eru Grunnskólinn í Sandgerði og Gerðaskóli og skipuleggur fræðslufundi og kennaranámskeið.
Grunnskólar fá sérfræðiþjónustu í samræmi við ákvæði grunnskólalaga nr. 91/2008 og reglugerð um sérfræðiþjónustu og er lögð áhersla á að sálfræðileg og kennslufræðileg þekking nýtist sem best í skólastarfi.
Leikskólar fá sérfræðiþjónustu í samræmi við lög um leikskóla nr. 90/2008.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







