FFGÍR stendur fyrir Foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ. Í FFGÍR sitja formenn og varaformenn foreldrafélaga og formenn foreldraráða í grunnskólum Reykjanesbæjar.
Öll verkefni FFGÍR eru forvarnarverkefni en helsta markmið félagsins er að efla samstarf heimila og skóla.
FFGÍR er málsvari foreldra og skapar þeim vettvang til þess að hafa áhrif á skólastarf í samvinnu við bæjaryfirvöld, skóla og aðra sem koma þar að. Einnig er félagið umsagnaraðili um þau mál sem snerta foreldrastarf. FFGÍR fundar einu sinni í mánuði og formaður þess situr fundi fræðsluráðs Reykjanesbæjar.
FFGÍR stendur fyrir fræðslufundum og námskeiðum í samvinnu við fræðsluskrifstofu og hefur átt samstarf við Reykjanesbæ og félög í sveitarfélaginu um sérstök verkefni.








.jpg?76x54;crop)

