AÐ BYRJA Í LEIKSKÓLA
Í upphafi dvalar er gert ráð fyrir að foreldrar séu með barni sínu í leikskólanum. Þá er hornsteinn lagður að öryggi barnsins og samstarfi heimilis og skóla. Í leikskólanum á að ríkja gleði, eftirvænting og væntumþykja. Barnið þarf að læra að vinna með öðrum, eignast vini og öðlast heilbrigða samkennd.
Vinsamlegast hafið samband við leikskólastjóra varðandi aðlögun.
FORELDRASAMSTARF OG FORELDRASAMVINNA
Mikilvægt er að góð samvinna og trúnaður takist strax í byrjun milli foreldra og starfsmanna í leikskólanum. Þetta er forsenda þess að leikskóladvölin verði barninu árangursrík og ánægjuleg. Foreldrafélög eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjanesbæjar. Markmið félaganna er að vinna að velferð barna, efla tengsl foreldra og starfsfólks og auka þátttöku foreldra í starfi leikskólans.
STARFSFÓLK LEIKSKÓLA
Leikskólastjóri er yfirmaður leikskóla og ber faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfseminni. Aðstoðarleikskólastjóri er staðgengill leikskólastjóra. Leikskólakennarar og aðstoðarfólk vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Starfsfólk er bundið þagnarskyldu.
AÐALNÁMSKRÁ, LÖG OG REGLUGERÐIR
Leikskólar Reykjanesbæjar starfa samkvæmt lögum um leikskóla frá 1994 og reglugerð um leikskóla frá 1995. Leikskólinn er fyrsta skólastigið í menntakerfinu og ber að skilgreina hann sem slíkan.
Aðalnámskrá leikskóla var gefin út af menntamálaráðuneytinu árið 1999. Námskráin er fagleg stefnumótun og lýsir sameiginlegum markmiðum og kröfum sem eiga við um allt leikskólastarf. Í aðalnámskrá koma m.a. fram helstu námssvið leikskóla: málrækt, hreyfing, myndsköpun, tónlist, menning og samfélag. Sjá nánar á upplýsingavef menntamálaráðuneytis, www.menntamalaraduneyti.is
ÝMSAR UPPLÝSINGAR
- Leikskólar bæjarins eru ætlaðir börnum á aldrinum 2–6 ára.
- Leikskólarýmum er úthlutað eftir aldri þannig að eldri börn gangi fyrir þeim yngri. Breytist símanúmer, netfang eða heimilisfang umsækjanda er nauðsynlegt að tilkynna það strax. Í upphafi dvalar barns í leikskólanum er gerður dvalarsamningur sem undirritaður er af foreldri og leikskólastjóra.
- Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar.
- Leikskólarnir eru lokaðir í 5 vikur vegna sumarleyfa.
- Skipulagsdagar starfsfólks eru þrír á ári, þá eru leikskólarnir lokaðir. Leikskólarnir eru lokaðir á aðfangadag og gamlársdag.
- Börn eru slysatryggð í leikskólum Reykjanesbæjar.
YFIRSTJÓRN LEIKSKÓLA REYKJANESBÆJAR
Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar, Skólavegi 1 (gamla barnaskólanum í Keflavík) hefur með höndum yfirstjórn leikskólamála Reykjanesbæjar.
Fræðsluráð er stjórnarnefnd málaflokksins. Leikskólafulltrúi er næsti yfirmaður leikskólastjóra og hefur yfirumsjón með faglegu starfi og rekstri leikskóla.
Sálfræðingar, sérkennslufulltrúi og talmeinafræðingur eru starfandi við sérfræðiþjónustu Fræðsluskrifstofu.
Innritun í leikskóla fer fram á Mitt Reykjanes eða á bæjarskrifstofum Tjarnargötu 12. Sækja má um dvöl í leikskóla strax eftir fæðingu barns.
Fræðsluskrifstofan er opin frá kl. 8:30 – 15:30 frá mánd.- fimmtudags en frá kl. 8.30-15.00 á föstudögum.
LEIKSKÓLAR REYKJANESBÆJAR
Garðasel
Hólmgarði 4
s. 421 3252
opið: kl. 7:30-17:15
netfang: gardasel@reykjanesbaer.is
veffang: gardasel.reykjanesbaer.is
Gimli
Hlíðarvegi 7
s. 421 5707
opið: kl. 7:45-16:15
netfang: gimli@reykjanesbaer.is
veffang: leikskolinn.is/gimli
Heiðarsel
Heiðarbraut 27
s. 420 3130
opið: kl. 7:45-16:15
netfang: heidarsel@reykjanesbaer.is
veffang: heidarsel.reykjanesbaer.is
Hjallatún
Vallarbraut 27
s. 421 7404
opið: kl. 7:45-16:15
netfang: hjallatun@reykjanesbaer.is
veffang: hjallatun.reykjanesbaer.is
Holt
Stapagötu 10
s. 421 6100
opið: kl. 7:30-16:15
netfang: holt@reykjanesbaer.is
veffang: reykjanesbaer.is/holt
Tjarnarsel
Tjarnargötu 19
s. 420 3100
opið: kl. 7:30-16:15
netfang: tjarnarsel@reykjanesbaer.is
veffang: reykjanesbaer.is/tjarnarsel
Vesturberg
Vesturbraut 13
s. 420-3115
opið: kl. 7:45-16:15
netfang: vesturberg@reykjanesbaer.is
veffang: http://vesturberg.reykjanesbaer.is/
Akur
Tjarnarbraut 1-3
s. 421 8310
opið: Kl. 7:45 - 16:15
netfang: akur@hjalli.is
veffang: hjalli.is/akur
Völlur
Vallarheiði
s. 421 8340
opið: 6:30 - 17:00
netfang: vollur@hjalli.is
veffang: hjalli.is/vollur
Háaleiti
Vallarheiði
s. 421 6700
netfang: Haaleiti@Reykjanesbaer.is
veffang:skolar.is

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







