Aggression Replacement Training (ART).
Í október 2009 hélt Fræðsluskrifstofa námskeið fyrir kennara í skólum til að kenna ART, kennari á námskeiðinu var Guðrún Inga Guðmundsdóttir sálfræðingur.
ART er námskeið sem nær yfir félagsfærni , reiði og siðgæði. Þjálfun fer fram í hópum, þar sem eru yfirleitt 6 börn og tveir þjálfarar. Nemendur sem sækja námskeiðið fá handbók um þá tækni sem þeir eiga að tileinka sér og þær æfingar sem þeir eiga að gera. Þessi handbók er einnig mjög gott upplýsingarrit fyrir foreldra.
Í félagsfærniþjálfun er farið yfir helstu þætti í félagsfærni og þeir ræddir og síðan æfðir í hlutverkjaleikjum þannig að barnið fái viðeigandi æfingu um samskipti en ekki einungis umræðu um þá.
Í reiðistjórnun er nemendum kennt að bera kennsl á hugsanir og líkamlegar vísbendingar um reiði og kenndar aðferðir til að dempa reiðina niður. Í þessum hluta er líkt og í félagsfærni mikil áhersla lögð á hlutverkaleiki.
Í siðgæðisþjálfun er börnum kennt að koma skoðunum sínum á framfæri varðandi málefni sem geta verið siðferðislega flókin og að hlusta á og taka tillit til skoðana annarra.
Áætlað er að þjálfunartími námskeiðsins sé um 10-12 vikur og að þjálfun fari fram þrisvar í viku í klukkutíma í senn. Í hverri viku er farið í einu sinni í hvern þátt þjálfunarinnar. Tímar fara þannig fram að þau reynt er fá þau börn sem eru í tímunum hverju sinni til að vera í aðalhlutverki. Þau eru hvött til að hafa skoðanir á hlutunum og að koma þeim skoðunum frá sér á viðeigandi hátt auk þess að taka við skoðunum annarra.
Skólar sem bjóða upp á ART eru Akurskóli, Holtaskóli, Njarðvíkurskóli og Sandgerðisskóli. Það er þó mismunandi eftir skólum hversu oft eða á hvaða tíma námskeiðin eru keyrð. Einnig er það undir hverjum skóla komið hvaða nemendur sitja námskeiðið hverju sinni.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







