Félagar

Þrátt fyrir aukin lífsgæði eru börn og unglingar líklegri til að þróa með sér einhvers konar geðröskun en fyrir 20 árum og skv. erlendum rannsóknum glíma um 20% af börnum á aldrinum 12-16 ára við einhvers konar geðröskun. Geðraskanir hafa víðtæk áhrif á líf barnsins; virkni í námi, félagslega aðlögun, fjölskyldulíf o.s.frv. Kostnaður vegna þessa er einnig gríðarmikill, m.a. í formi sérfræðiþjónustu og sértækra úrræða í mennta- og heilbrigðiskerfi. 

Ekki er hægt að tíunda mikilvægi kerfisbundinnar forvarnar sem eykur bjargráð og viðnám við streitu en hér á landi er þessum þætti ekki sinnt nægilega vel og kostnaður vegna geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga er mjög hár. 

Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) frá árinu 2004 er lögð áhersla á mikilvægi þess háttar forvarnar og mælir stofnunin með námsefninu "FRIENDS for Life", eða Félagar eins og námsefnið nefnist á íslensku, sem þróað er í Ástralíu. Námsefnið byggir á grundvallaraðferðarfræði hugrænnar atferlismeðferðar sem eru vel þekkt fræði og þar eru nýttar aðferðir sem hafa borið góðan árangur til að auka bjargráð og viðnám við tilfinningalegum erfiðleikum. Rannsóknir hafa sýnt að verkefnið ber góðan árangur; annars vegar sem altæk og sértæk forvörn og hins vegar sem sérhæft meðferðarúrræði. Efnið er hannað fyrir 4-16 ára börn en mismunandi útgáfur eru til eftir aldurshópum.

Virkni og árangur Félaga hefur verið ítarlega rannsakað í 12 ár og hefur verkefnið ótvíræða yfirburði á sínu sviði. Meirihluti þeirra barna sem sýna einkenni kvíða eru einkennalaus eftir að hafa farið í gegnum námsefnið og árangurinn er viðvarandi í sex ár, að minnsta kosti.

Erlendis hafa Félagar verið þróaðir á þann hátt að það er keyrt innan skólans og hafa starfsmenn hans séð um að kenna námsefnið. Öll börn í tilteknum árgöngum fara í gegnum verkefnið og því nær boðskapurinn til allra barna sem leysir algengan vanda þegar um sérhæfðari þjónustu er að ræða; t.d. að ekki sé komið auga á öll börn sem þurfa á aðstoð að halda, erfiðleika við mætingu og biðlistum er útrýmt. Til þess að nota Félaga þurfa þeir starfsmenn sem munu kenna efnið fara á eins dags námskeið.

Félagar eru nú þegar notaðir í mörgum löndum og hafa rannsóknir sýnt að árangur helst yfir mismunandi tungumál og menningu. Um tuttugu önnur lönd vinna nú að innleiðingu Félaga. Meðal þessara landa eru Finnland, Svíðþjóð, Bandaríkin, Bretland, Ástralía, Saudi Arabía og Kína.

Námsefnið hefur verið þýtt á íslensku og nú er í vinnslu viðamikil rannsókn meðal unglinga í níunda bekk á Reykjanesi. Rannsóknin nær yfir tvo árganga og um helmingur þeirra fær kennslu í Félögum en hinn helmingurinn er til viðmiðunar. Efnið passar vel í almenna skólanámsskrá og verið er að nota efnið sem altæka forvörn í Lífsleikni. Verið er að athuga hvort sambærileg áhrif fáist hér og erlendis.

Fréttir