Kennsla innflytjenda

Þegar Innflytjendur innrita sig í grunnskóla í Reykjansebæ fer tiltekið móttökuferli í gang í skólanum og undirbúningur undir kennslu í íslenksu sem öðru tungumáli af stað.

Íslenska sem annað tungumál er námsgrein fyrir nemendur sem hafa ekki nægilegt vald á íslensku til að geta stundað nám í íslenskum skólum til jafns við aðra nemendur. Þetta á jafnt við um nemendur af íslenskum og erlendum uppruna. Nám í greininni er ekki eingöngu tungumálanám heldur miðar að því að nemendur með annað móðurmál en íslensku fylgi jafnöldrum sínum í öllu námi eftir því sem kostur er. Þetta þýðir að viðfangsefni íslensku sem annars tungumáls tengjast öllum námsgreinum og er samþætting því nauðsynleg. Íslenskunám er innflytjendum mikilvægt til þátttöku í samfélaginu. Það er meðal annars hlutverk skóla að hjálpa börnum frá öðru menningarsvæðum að verða virkir þátttakendur í nýju samfélagi.

 Til hóps innflytjenda teljast:

  • þau börn sem hafa fæðst erlendis.
  • börn sem eiga foreldra sem eru af erlendum uppruna.
  • þau sem hafa dvalist langdvölum erlendis.  
  • Frekari upplýsingar um móttöku og kennslu í íslensku sem öðru tungumáli má finna hér Handbók

    Tenglar

    Fjölmenning í leikskóla
    Skilaboð á milli skóla og foreldra
    Skólaorðaforði / School vocabulary
    Fjölmenningarsetur
    Nemendur með íslensku sem annað tungumál í grunnskólum - upplifun fagfólks skólanna.
    Educational system in Iceland

    Fréttir

    Sjá fleiri fréttir