Verkefninu Lestrarmenning í Reykjanesbæ var ýtt úr vör þann 23. apríl 2003 á alþjóðlegum degi bókarinnar. Verkefnið stóð formlega yfir til aprílloka 2006 en lifir góðu lífi í skólum bæjarins.
Lestrarmenning í Reykjanesbæ var samfélagslegt verkefni sem hafði það að markmiði að efla lestrarfærni og málþroska barna og setja lestur í forgang í bæjarfélaginu.
Þetta mun hafa verið í fyrsta sinn sem sveitarfélag á Íslandi setur læsi og málþroska barna í forgang með þeim hætti að leitað sé breiðrar samstöðu og stuðnings hjá fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum í bænum, auk skóla og annarra stofnana bæjarins.
Öll börn á leikskólaaldri fengu að gjöf bók eftir íslenskan höfund frá Félagi íslenskra bókaútgefenda sem var táknrænt upphaf verkefnisins. Bókagjöfinni fylgdi bæklingur með yfirskriftina "Viltu lesa fyrir mig?". þar er að finna fróðleikskorn og ábendingar um mikilvægi lestrar með börnum og tengsl hans við málþroska.
Var það von manna að með verkefninu Lestrarmenning í Reykjanesbæ fæddist nýr lestrarhestur á hverjum degi.
Lestrarmenning í Reykjanesbæ
Lestrarhestaromsa - Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Bókelsk börn - Svanhildur Eiríksdóttir deildarstjóri barnadeildar á Bókasafni Reykjanesbæjar
Viltu lesa fyrir mig? - bæklingur 
Logo lestrarmenningar
Greinar
Viltu gefa mér bókajól? - Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri
Lesblindur er bóklaus maður - Anna Dóra Antonsdóttir sérkennslufulltrúi
Lesum í sumar - Dröfn Rafnsdóttir kennsluráðgjafi
Tenglar
whichbook
Vefur um barna- og unglingabókmenntirReading Tenglar
magic
Opening the book

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







