Logos

LOGOS er greiningartæki til að greina lestrarerfiðleika hjá börnum, unglingum og fullorðnum.

LOGOS er tölvuforrit til að greina dyslexiu og aðra lestrarerfiðleika og því fylgir handbók með fræðilegri umfjöllun um lestrarerfiðleika ásamt leiðbeiningum um fyrirlögn og túlkun.

Í janúar 2006 hófst samstarf við lestrarsérfræðinginn prófessor Torleiv Høien frá Noregi um þýðingu, stöðlun og staðfæringu LOGOS á Íslandi.  Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar hefur styrkt verkefnið og stuðlað að útgáfu þess á Íslandi. Gyða M. Arnmundsdóttir sérkennslufulltrúi fræðsluskrifstofunnar er einn af fjórum þýðendum og eigendum forritsins.

LOGOS er hugsað fyrir grunnskóla en getur einnig nýst framhaldsskólum, lestrarmiðstöðvum, fullorðinsfræðslu og einkaskólum.

Uppbygging LOGOS-prófsins:

1. hluti er í 17 þáttum og er ætlaður og staðlaður fyrir 3. - 5. bekk en einstöku prófhluta er hægt að nota í 2. bekk þannig að hægt sé að greina lestrarerfiðleika barna eins fljótt og unnt er.

2. hluti er í 14 þáttum og er ætlaður og staðlaður fyrir 6. - 10. bekk og fullorðna.
Þættirnir greina færni í leshraða, lesskilningi, skilningi við hlustun, umkóðunarfærni og annarri lestrartengdri færni.
Flestir prófþættir eru metnir með tilliti til réttra svara og viðbragðsflýtis.
Hægt er að fá niðurstöður með ýmsu móti svo sem , þversnið með hundraðsröðun á niðurstöðum nemandans, staðlaða skýrslu, sundurliðaða skýrslu eða nánari útfærslur á vandanum  sem sýna stöðu nemandans, bæði sterkar og veikar hliðar.

Niðurstöður hvers prófs vistast rafrænt og LOGOS-prófið gefur möguleika á að sækja fyrri prófniðurstöður, endurtaka valda prófhluta og meta framfarir. Þá fylgja úrræði til eflingar og þjálfunar samkvæmt niðurstöðum hinna ýmsu prófþátta sem koma til með að bæta færni lestrar hjá nemendum. Þessi úrræði ásamt tillögum og ábendingum er hægt að prenta út um leið og skýrslurnar sem liggja fyrir strax að próftöku lokinni. Hver prófandi getur einnig gert sínar persónulegu athugasemdir út frá upplýsingum og aðstæðum sem koma fram við próftöku. Þetta er mikil hagræðing við skýrslugerð.

Túlkun og greining lestrarerfiðleika verður mun einfaldari með tilkomu LOGOS forritsins.

Þær kröfur eru gerðar til þeirra sem fá að nota LOGOS-greiningartækið að þeir hafi faglega sérþekkingu á kennslu- og uppeldismálum, taki þátt í námskeiði sem meðal annars felst í því að prófa nemendur, túlka niðurstöður og skila skýrslu með tillögum að kennslufræðilegum úrræðum. Þessi skýrsla verður lögð til grundvallar mati á því hvort viðkomandi fær leyfi til að nota LOGOS á Íslandi.

Heimasíða LOGOS

Fréttir