PBS (Positive Behavior Support) eða heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun er árangursprófað og viðurkennt vinnulag sem með kerfisbundnum hætti hvetur til jákvæðrar hegðunar, eykur félagsfærni, bætir samskipti og dregur jafnframt úr hegðunarvanda barna og unglinga.

Hvernig vinnur skólinn með PBS?

Í PBS skólum er unnið út frá ákveðnum gildum (einkunnarorðum) sem skólinn einsetur sér að vinna með, t.d. virðing, ábyrgð, tillitssemi. Væntingar um hegðun og samskipti í öllum aðstæðum skólans eru unnar út frá þessum gildum. Þekking og skilningur starfsfólks og nemenda eru tryggð með kennslu væntinga, æfingum og hvatningu. Áhersla er á jákvæð samskipti, skýr fyrirmæli og hrós. Í skólanum eru hengdar upp myndir í augnhæð nemenda sem minna á gildi og væntingar skólans. Óæskileg hegðun nemenda er skilgreind og hún stöðvuð markvisst í samræmi við agaferil skólans. Áhersla er á lausnarmiðaðar aðferðir við að leysa vanda sem upp kemur. Innan skóla er starfrækt PBS teymi sem sér um fræðslu til starfsfólks, nemenda og foreldra, metur árangur og sér um framþróun verkefnisins.

Hvernig geta foreldrar unnið með PBS?  

Stuðningur við jákvæða hegðun á heimilum er mikilvægur. Jákvæð samskipti, hvatning og skýr mörk stuðla að aukinni færni og vellíðan barna og styrkja sjálfstraust þeirra.

Samskipti og samvinna

Að veita barni athygli og sýna daglegu lífi þess áhuga er mikilvægt. Hlutfall jákvæðra samskipta ættu ávallt að vera a.m.k. fimm á móti hverjum einum neikvæðum. Fyrir hver neikvæð samskipti ættu að eiga sér stað fimm jákvæð samskipti!

Skýrar væntingar og fyrirmæli

Fyrirmæli eiga að vera stutt, einföld, nákvæm, jákvætt orðuð og gefin í yfirveguðum tón. Skýrar og einfaldar væntingar á heimilum auðvelda foreldrum að gefa skýr fyrirmæli og auka jafnframt líkur á samstarfi barns.

Hvatning

Þegar kennd er ný færni og henni viðhaldið er hvatning (hrós, athygli) nauðsynleg. Hrósa þarf á einlægan og nákvæman hátt þannig að barn sé aldrei í vafa um fyrir hvað er hrósað. Hvatning eykur líkur á að barn endurtaki hegðun.

Að setja mörk

Skýr mörk, fyrirsjáanlegar og sanngjarnar afleiðingar sem eru í samræmi við hegðun barns eru mikilvægar. Sýna skal stillingu og yfirvegun þegar brugðist er við óæskilegri hegðun.

Samvinna skóla og heimilis

Náið samstarf foreldra og aðstandenda við skóla er mikilvægt til að stuðla að góðri hegðun hjá nemendum, bættum námsárangri, félagsþroska og góðri líðan. Nauðsynlegt er að foreldrar viti hvernig barninu þeirra gengur í skólanum og kynni sér þær væntingar sem skólinn hefur til hegðunar. Góð samvinna milli skóla og heimilis er mjög mikilvæg til að veita barninu þann stuðning sem það þarf til að ganga sem best í skólanum. Þegar foreldrar eru í samstarfi við skólann þegar vel gengur er auðveldara að leysa vandamál þegar þau koma upp.

Heimasíða PBS á Íslandi

Fréttir