Sérfræðiþjónusta

Þjónusta og stuðningur við nemendur í leik- og grunnskólum

Hlutverk sérfræðiþjónustu Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar er samkvæmt reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla. Hún veitir Þjónustu og stuðning við nemendur í leik- og grunnskólum og foreldra þeirra annars vegnar og hins vegar stuðning við starfsemi skóla og starfsfólk þeirra.

Markmið með sérfræðiþjónustu sveitarfélaga er að kennslufræðileg, sálfræðileg, þroskafræðileg og félagsfræðileg þekking nýtist sem best í skólastarfi.

Sérfræðiþjónusta beinist að því að efla skóla sem faglegar stofnanir sem geti leyst flest þau viðfangsefni sem upp koma í skólastarfi og veita starfsfólki skóla leiðbeiningar og aðstoð við störf sín eftir því sem við á.

Starfsmenn sérfræðiþjónustunnar leggja mat á færni og stöðu nemenda og nemendahópa. Viðeigandi matstæki geta til dæmis verið samræmd könnunarpróf, skimunarpróf, greiningartæki, kannanir, athuganir og skoðun á einstaklingum eða nemendahópum.

Starfsmenn sérfræðiþjónustu Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar eru efirtaldir

Fréttir