Sérkennslufulltrúar

Gyða M. Arnmundsdóttir sérkennslufulltrúi grunnskóla

Sérkennslufulltrúa grunnskóla er ætlað að tryggja að kennslufræðileg þekking nýtist í skólastarfi. Hann sér um greiningar og ráðgjöf til skóla og foreldra vegna nemenda með sérþarfir. Sérkennslufulltrúi hefur umsjón með að nemendur hljóti sérkennslu samkvæmt lögum, aðstoðar við gerð sérkennsluáætlana, metur sérkennsluþörf og er í samskiptum við aðrar stofnanir svo sem BUGL, Greiningar- og rágjafarstöð ríkisins o. fl.

Panta má viðtal í síma 421 6700 eða á netfangið gyda.m.arnmundsdotti(hjá)reykjanesbaer.is

Ingibjörg Hilmarsdóttir sérkennslufulltrúi leikskóla

Hefur yfirumsjón og eftirlit með sérkennslu í leikskólum. Ber ábyrgð á ráðgjöf, fræðslu og eftirfylgd vegna barna er njóta sérfræðiaðstoðar eða sérkennslu í leikskólum til kennara og foreldra. Vinnur að greiningu og sér til þess viðkomandi barni sé vísað í nánara mat ef þurfa þykir. Er með mánaðarlega viðveru í leikskólum Reykjanesbæjar ásamt leikskólunum í Sandgerði, Garði og Vogum.

Panta má viðtal í síma 421 6700 eða á netfangið ingibjorg.hilmarsdottir(hjá)reykjanesbaer.is

Fréttir