Á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar er einn talmeinafræðingur í fullu starfi. Þjónustusvæði talmeinafræðings er Reykjanesbær, Garður, Sandgerði og Vogar.
Talmeinafræðingur:
Kristinn Hilmarsson talmeinafræðingur
Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar, Skólavegi 1 (gamla barnaskólanum í Keflavík). Sími: 421 6700.
Talmeinafræðingur Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar greinir mál- og talörðugleika barna á aldrinum 0 til 18 ára.
Hann veitir jafnframt börnum, foreldrum/forráðamönnum og starfsmönnum stofnana ráðgjöf.
Talþjálfun fer fram á starfsstofu talmeinafræðings að Skólavegi 1 (gamla barnaskólanum í Keflavík)
Talþjálfun barna á leikskólaaldri og fullorðinna er greidd að hluta af Sjúkratryggingum Íslands. Tryggingayfirlæknir veitir heimild til talþjálfunar ef tilvísun læknis og umsögn talmeinafræðings uppfyllir skilyrði um greiðsluþátttöku almannatrygginga.
Hér má finna ýmsa tengda tengla.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







