Umhverfis- og skipulagssvið fer með skipulags-, umhverfis- og byggingarmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Það stýrir öllum framkvæmdum á vegum bæjarins og hefur eftirlit með viðhaldi fasteigna Reykjanesbæjar . Skrifstofa byggingarfulltrúa fer með eftirlit með byggingarreglugerð og sér um lóðaskráningu og skráningu fasteignamats.
Framkvæmdastjóri er Guðlaugur H. Sigurjónsson. Hann annast stjórn verklegra framkvæmda, hefur umsjón með skipulagsmálum, nýbyggingum, viðhaldi fasteigna og rekstri gatnakerfis og er yfirmaður Áhaldahúss.
Byggingarfulltrúi starfar með byggingarnefnd og til hans berast teikningar af byggingum og breytingum á húsum. Hann hefur eftirlit með að mannvirki séu byggð samkvæmt samþykktum og ákvæðum byggingarreglugerða, ásamt yfirumsjón með lóðaskráningu og skráningu fasteignamats.
Byggingarfulltrúi er Einar Júlíusson.
Aðrir starfsmenn eru Sveinn Númi Vilhjálmsson verkfræðingur, Björn Samúelsson eftirlitsmaður fasteigna, Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir og Sigmundur Eyþórsson tæknifulltrúi.


.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







