Algengar spurningar

Hvað eru leydisskyldar byggingarframkvæmdir?

Allar húsbyggingar, viðbyggingar, bifreiðageymslur og skýli, breytingar á byggingum og burðarhlutum þeirra, innanhúss sem utan, s.s. breytingar á gluggum, klæðningu húsa að utan, sólstofur, svalaskýli, garðhús, heita potta, sundlaugar, uppsetning á gervihnattadiskum og gerð bifreiðastæða eru m.a. leyfisskyldar framkvæmdir. Meginreglan er því sú, að óheimilt er að hefja framkvæmdir nema sveitarstjórn hafi gefið út leyfi fyrir þeim. Sjá byggingarreglugerð 11. og 12. gr.

Garðskúrar

Hvernig á að sækja um og þarf að borga gjöld?
Nálgast má reglur um smáhús/garðskúra, hjá Byggingafulttrúa, Tjarnagötu 12.
Sækja þarf um leyfi til Byggingarfulltrúa, Tjarnagötu 12, sjá umsóknareyðublað

Með umsókninni þarf að fylgja ljósrit af aðalteikningu íbúðarhúss, þar sem rissuð eru inn á helstu mál garðskúrsins og staðsetning á lóð. Einnig þarf að fylgja samþykki meðeigenda í húsinu ef um fjölbýli er að ræða.

Ekkert gjald þarf að greiða fyrir leyfið
 

Bílskúr, sólstofa, gróðurhús og aðrar viðbyggingar

Hvernig á að sækja um og þarf að borga gjöld?
Á deiliskipulagi sést hvort byggja megi bílskúr eða aðrar viðbyggingar. Byggingar þurfa að vera innan byggingarreits. Deiliskipulag er hægt að nálgast á skrifstofu Umhverfis- og skipulagssvið eða á Skipulagsjá.
Ekki er til deiliskipulag af öllum eldri hverfum Reykjanesbæjar. Ef skipulag er ekki til staðar metur skipulagsnefnd umsóknina og ef hún telur erindið koma til greina sendir nefndin það í grenndarkynningu.

Breytingar á gluggum og klæðningu húsa

Hvernig á að sækja um og þarf að borga gjöld?
Ef um útlitsbreytingu er að ræða þarf að fá löggiltan hönnuð til að teikna upp breytt útlit hússins.
Sækja þarf um leyfi til Byggingarfulltrúa, Tjarnargötu 12, sjá umsóknareyðublað.
Bent skal á að oft er gott að leggja inn fyrirspurn hjá Byggingarfulltrúa um hvort leyfi fáist fyrir breytingum á húsinu áður en farið er út í kostnað við hönnun, sjá umsóknareyðublað.
Einnig þarf byggingarstjóri að undirrita yfirlýsingu um ábyrgð sína á breytingunni,, og húsasmíðameistari þarf að skila inn ábyrgð sinni á breytingunum, sjá meistarablað.

Ekkert gjald þarf að greiða til Skipulagsstjóra fyrir leyfið.

Gervihnattardiskar

Hvernig á að sækja um og þarf að borga gjöld?
Sækja þarf um leyfi fyrir uppsetningunni til Skipulagsstjóra, Tjarnargötu.
Með umsókninni þarf að vera ljósrit af aðalteikningu íbúðarhúss, útliti, þar sem rissuð er inn á fyrirhuguð staðsetning á disknum. Einnig þarf að fylgja samþykki meðeigenda í húsinu ef um fjölbýli er að ræða.
Ekkert gjald þarf að greiða til Skipulagsstjóra fyrir leyfið.

Hvað er aðalskipulag?

Aðalskipulag er skipulagsáætlun fyrir sveitarfélagið þar sem fram kemur stefna bæjarstjórnar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar í sveitarfélaginu á minnst 12 ára tímabili.
Aðalskipulag er hægt að nálgast hjá Skipulagsstjóra, Tjarnargötu 12, eða á Skipulagsjá.

Hvað tekur langan tíma að breyta deiliskipulagi?
Að breyta deiliskipulagi tekur minnst 3 mánuði, ef allt gengur að óskum. Deiliskipulagstillögu þarf að skila inn til Skipulagsstjóra. Hún er síðan tekin fyrir af Skipulagsnefnd og ef vilji er fyrir breytingunum innan nefndarinnar tekur hún ákvörðun um hvort deiliskipulagsbreytingin er auglýst eða send í grenndar-kynningu og afgreiðir erindið til bæjarstjórnar til samþykktar eða synjunar að kynningu lokinni. Deiliskipulagið er sent til Skipulagsstofnunar til yfirferðar sem veitir heimild til að birta auglýsingu um gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda.

Teikningar

Hvar get ég fengið teikningu af húsinu mínu og lóðinni minni?
Á skipulagsdeild, Tjarnargötu 12, eru allar teikningar, sem skilað hefur verið inn af húsum varðveittar og allir lóðasamningar fyrir leigulóðir. Hægt er að fá ljósrit af teikningum eða nálgast teikningar á pdf eða tiff formi. Ljósrit af lóðasamningi fæst á Skipulagdeild.

 

Fréttir