Stefnumörkun Reykjanesbæjar
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008 - 2024 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá og með 29. maí 2009 til og með 10. júlí 2009. Tillöguna má einnig skoða hér á vefnum.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 31. júlí 2009. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Vinna við endurskoðun Aðalskipulags Reykjanesbæjar hófst í árslok 2006. Reykjanesbær setti á fót stýrihóp sem hafði umsjón með skipulagsvinnunni og vann náið með skipulagsráðgjöfum við gerð aðalskipulagsins á öllum stigum skipulagsvinnunnar.
Í upphafi voru skilgreindir helstu verkþættir skipulagsvinnu og áætlaður verktími og kostnaður. Í júlí 2007 voru kynnt leiðarljós, markmið og áherslur skipulagsvinnu og hefur hún byggt á þeim grunni ásamt þeim ábendingum sem komið hafa fram á kynningartíma. Í júní 2008 voru kynnt drög að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar og í apríl 2009 var tillaga að Aðalskipulagi 2008-2024 kynnt á opnum fundi.
Skipulagsvinnan fer fram á þeim tíma sem umfangsmiklar breytingar eiga sér stað í sveitarfélaginu og ber helst að nefna að fyrrum varnarsvæði eru færð í borgarleg not. Öllum breytingum fylgja tækifæri og til þess að nýta sér þau sem best mótaði Reykjanesbær sér framtíðarsýn sem varð svo grunnur að stefnumiðum í skipulagsvinnunni. Stefnan miðar að góðu samfélagi m.t.t. opinberrar þjónustu, samgangna, lýðheilsu, náttúruverndar, atvinnuuppbyggingar, fjölbreytileika starfa, menntunar og eftirsóknarverðra íbúðasvæða með margvíslegum búsetukostum.
Byggt á þessari stefnu hefur verið mótuð tillaga að Aðalskipulagi, sem er ætlað að leiðbeina í þróun og uppbyggingu samfélagsins í Reykjanesbæ, hvar og í hvaða formi hún verður, marka stefnu um þær aðgerðir sem þarf að grípa til og þau sjónarmið sem þarf að hafa til hliðsjónar. Stefna sveitarfélagsins er metnaðarfull og er markmiðið að íbúar Reykjanesbæjar verði orðnir 23.000 talsins í lok skipulagstímabilsins. Einnig er stefnt að því að störf í sveitarfélaginu verði þá um 11.000. Til að þessi markmið gangi eftir þarf að skapa umhverfi sem er eftirsóknarvert fyrir fyrirtæki og íbúa.
Þessu umhverfi er lýst í tillögu að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024.
- Þéttbýlisuppdráttur aðalskipulags (pdf 0.8 Mb)
- Sveitarfélagsuppdráttur aðalskipulags (pdf 1.2 Mb)
- Greinargerð aðalskipulags (pdf 40.0 Mb)
- Umhverfisskýrsla aðalskipulags (pdf 0.3 Mb)


.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







