Auglýsing
Breyting á deiliskipulagi iðnaðar-og orkuvinnslusvæðis Reykjanesi
og tillaga að deiliskipulagi á Reykjanesi vegna fiskeldis
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýstar til kynningar tillögur að breyttu deiliskipulagi iðnaðar-og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi og deiliskipulagi lóðarinnar Vitabraut 7 Reykjanesi, ásamt greinagerð og umhverfisskýrslu skv. lögum nr.105/2006 um umhverfismat áætlana.
- Breyting á deiliskipulagi iðnaðar-og orkuvinnslusvæðis Reykjanesi Tilgangur skipulagsbreytingar er að færa afmörkun deiliskipulagsins vegna skipulagstillögunnar sem er í lið 2.
- Tillaga að nýju deiliskipulagi við Vitabraut 7 (fiskeldi) við Kistu sem er við ströndina vestan orkuvers HS-orku á Reykjanesi.Stærð skipulagssvæðis er 8,74 ha og byggingarmagn um 6 ha.
Tillögur ásamt greinagerð deiliskipulags og umhverfisskýrslu verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 frá og með 20.okt 2011 til 17.nóv 2011. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1.desember 2011. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ.Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkja hana.
Reykjanesbæ, 19.október 2011.
Sveinn Númi Vilhjálmsson
Skipulagsfulltrúi
deiliskipulag-vitabraut-7 (pdf)
umhverfisskyrsla-14-okt-2011 lokautgafa (pdf)
deiliskipulagsuppdrattur-idnadar-og-orkuvinnskusvaedi-reykjanesi (pdf)
Kynning á drögum að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024
Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Suðurnesja hefur samþykkt að kynna drög að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Drögin verða aðgengileg á heimasíðu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (www.sss.is) og allra sveitarfélaganna sem eiga aðild að nefndinni. Jafnframt er kynnt verkefnislýsing skipulagsvinnunnar.
Svæðisskipulagið mótar stefnu og leikreglur skipulagsyfirvalda fyrir þau málefni sem eru mikilvæg á svæðisvísu og snerta hagsmuni fleiri en eins aðila í samvinnunefndinni. Samvinnunefndin hefur skilgreint megin áherslur skipulagsvinnu og út frá þeim þau viðfangsefni sem skipulagsáætlunin skal vinna að. Viðfangsefni skipulagsins eru:
- Atvinna
- Auðlindir
- Veitur og samgöngur
- Flugvallarsvæðið
- Samfélag
Ábendingar og athugasemdir við drögin skal senda til formanns samvinnunefndarinnar á netfangið asmundur@svgardur.is. Einnig er hægt að senda athugasemdir merktar Svæðisskipulag Suðurnesja á póstfangið, Bæjarskrifstofur Garðs, Sunnubraut 4, 250 Garður.
Frestur til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar við drög að svæðisskipulaginu er til og með 17. nóvember 2011.
Samvinnunefndin vonast til þess að sem flestir kynni sér þá stefnumörkun sem unnið hefur verið að fyrir Suðurnesin og þær áherslur og aðgerðir sem talið er nauðsynlegt er að ráðast í á næstu árum til að ná settum markmiðum.
Skjöl
Verkefnislýsing
Drög að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024
Drög að umhverfisskýrslu


.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







