Opin og græn svæði

 

Viðurkenningar fyrir lóðir og götur.

Umhverfis- og skipulagsráð veitir árlega viðurkenningar fyrir lóðir og götur sem þykja skara fram úr í snyrtilegri umgengni, fögrum gróðri og framlagi til umhverfismála.

Umhirða lóða og opinna svæða

Unnið er að átaki í umhverfismálum í Reykjanesbæ og má þar nefna uppgræðslu, gróðursetningu á opnum svæðum og í íbúðarhverfum, frágang göngustíga og búnað á leiksvæðum.
Lóðum ber að halda hreinum og þrifalegum.
Tilmælum er beint til bæjarbúa og starfsmanna fyrirtækja að taka þátt í árlegri lóðahreinsun þar sem bæjaryfirvöld veita aðstoð við að fjarlægja rusl frá lóðum. Starfsmenn garðyrkjudeildar annast framkvæmdina og fara um hverfi bæjarins samkvæmt auglýstri áætlun.

Garðúrgangur

Óheimilt er að losa jarðveg, garðúrgang og rusl út fyrir opnar lóðir á óbyggð svæði.

Upplýsingar um flokkun úrgangs

Sorphirðudagatal

Þjónustusími
420 3200

 

Fréttir