Vinnuskóli

Vinnustaður unglinga á aldrinum 14 til 16 ára

Í flestum tilfellum er um að ræða fyrstu kynni unglinga af launaðri atvinnu og því mikilvægt að vel til takist, því lengi býr að fyrstu gerð.

Reynt er eftir bestu getu að hafa fjölbreytni í verkefnum unglinganna, en slíkt ýtir undir vinnugleði. Flokksstjórinn er ávallt hjá sínum hóp og er hlutverk hans m.a. að kenna unglingunum rétt handtök við þau verk sem unnin eru hverju sinni. Mikilvægt er að flokksstjórinn sé jákvæður í garð starfsins og tali vel um það. Ef hann er aftur á móti neikvæður og lætur það í ljós er nær öruggt að unglingarnir eru sama sinnis. Reynt er eftir fremsta megni að dreifa hópunum í ýmis verkefni og einnig á milli hverfa, en þó er reynt að hafa hópana ekki mjög langt frá heimilum sínum.

Helstu verkefni Vinnuskólans eru:

  • Götu og hverfahreinsun
  • Beðahreinsun
  • Sláttur og rakstur
  • Tyrfing

Einnig er nokkuð um það að elstu unglingarnir eru sendir í svokölluð sérverkefni, t.d. aðstoð á íþrótta-og leikjanámskeiðum, í stofnunum bæjarins, á golfvöllinn ofl.

Í umsókn um vinnuskóla er afmarkaður reitur þar sem hægt er að koma með athugasemdir frá umsækjendum.

Vinnuskóli Reykjanesbæjar er tóbakslaus vinnustaður.

Vinnutímabil Vinnuskóla Reykjanesbæjar 2012

Athugið að ekki er unnið á föstudögum í sumar

9-10 bekkur
Mánud.-Fimmtud. 08:00-12:00 / 13:00-16:00 

A- tímabil 11. júní til 5. júlí

B- tímabil   9. júlí  til 2. ágúst

8. bekkur
Mánud.-Fimmtud. 08:00-12:00

A- tímabil 18. júní til 5. júlí

B- tímabil 16. júlí til 2. ágúst

Laun í Vinnuskólanum eru eftirfarandi:
10.bekkur kr. 538 á klst. m/orlofi
9. bekkur kr. 447 á klst. m/orlofi
8. bekkur kr. 387 á klst. m/orlofi

Nemendur sækja um störf á vef Reykjanesbæjar og verður opnað fyrir umsóknir 4. maí nk.

Vinnuskóli Reykjanesbæjar

Hafnargata 88, 230 Reykjanesbæ
Sími Vinnuskóla á starfstíma er 421-1613
vinnuskoli@reykjanesbaer.is
Yfirmaður Vinnuskóla er Berglind Ásgeirsdóttir garðyrkjufræðingur hjá Reykjanesbæ
 

Fréttir