Sérstakur húsnæðisstuðningur

Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárhagslegur stuðningur fyrir einstaklinga og fjölskyldur á leigumarkaði sem þurfa sérstakan stuðning vegna lágra tekna og þungrar framfærslubyrðar.

Til þess að geta sótt um sérstakan húsnæðisstuðning þarf viðkomandi að hafa fengið samþykktar húsnæðisbætur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Sótt er um húsnæðisbætur rafrænt á www.hms.is  og þar þarf umsækjandi að merkja við að hann veiti sveitarfélaginu aðgang að umsókninni hjá HMS. 

Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir námsmenn er fjárstuðningur sem er veittur til foreldra eða annarra forsjáraðila námsmanna 15-17 ára sem leigja á heimavist eða námsgörðum hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Sótt er um rafrænt á MittReykjanes > Umsóknir > undir Velferð er valið Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir námsmenn 15-17 ára.

Sjá nánar í reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

Hver er munurinn á húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðisstuðningi?
  • Almennar húsnæðisbætur eru greiddar af ríkinu og gilda sömu reglur fyrir alla í landinu.
    • Sótt er um almennar húsnæðisbætur inn á vefsíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á hms.is
  • Sérstakur húsnæðisstuðningur er greiddur af sveitarfélögum og hvert sveitarfélag með sínar reglur.
    • Sótt er um sérstakan húsnæðisstuðning hjá Reykjanesbæ inn á mittreykjanes.is
Á ég rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi?
  • Já, ef þú uppfyllir eftirfarandi skilyrði:

    • Ert með samþykkta umsókn um húsnæðisbætur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
    • Ert fjárráða einstaklingur, 18 ára eða eldri
    • Býrð í leiguhúsnæði í Reykjanesbæ
    • Tekjur og eignir þínar og heimilismanna eldri en 18 ára eru undir ákveðnum viðmiðunarmörkum
Hver getur sótt um sérstakan húsnæðisstuðning?
  • Sá sem er skráður fyrir leigusamningi að íbúðarhúsnæði getur sótt um sérstakan húsnæðisstuðning. Aðrir íbúar teljast heimilismenn í umsókn.
  • Séu fleiri en einn aðili að leigusamningi um íbúðarhúsnæði er gert ráð fyrir að heimilisfólk komi sér saman um hvert þeirra skuli vera umsækjandi um sérstakan húsnæðisstuðning.
  • Athugaðu að fyrst þarf að sækja um húsnæðisbætur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og merkja við að umsækjandi veiti sveitarfélaginu aðgang að umsókninni hjá HMS.
Hvernig sæki ég um?

Þú sækir um rafrænt á MittReykjanes.isUmsóknir > undir Velferð er valið Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning.

Hvaða gögnum þarf ég að skila inn með umsókninni?
  • Staðfest skattframtal frá umsækjanda og heimilismönnum 18 ára og eldri
    • skattur.isFramtal > Undir Álagning er valið Staðfest afrit framtalsSækja afrit
  • Staðgreiðsluyfirlit Ríkisskattstjóra frá umsækjanda og öðrum heimilismönnum 18 ára og eldri
    • skattur.isAlmennt > Undir Yfirlit er valið Staðgreiðsluskrá RSK > Sækja pdf
Hversu há er upphæðin?
Upphæðin fer eftir samþykki frá HMS, húsaleigukostnaði, heildartekjum (fyrir skatt) og eignum þínum.
    • Fyrir hverjar 1.000 kr. sem leigjandi fær frá HMS, fær hann greiddar 750kr. í sérstakan húsnæðisstuðning, nema aðrir þættir komi til lækkunar á upphæðinni.
    • Húsnæðisbætur frá HMS og sérstakur húsnæðisstuðningur samanlagt geta aldrei numið hærri fjárhæð en samtals 75.108 kr.
      • Húsnæðisbætur HMS + sérstakur húsnæðisstuðningur = Max 75.108 kr.
    • Húsnæðisbætur HMS og sérstakur húsnæðisstuðningur samanlagt geta aldrei farið yfir 75% af leigufjárhæð
    • Ekki er greiddur sérstakur húsnæðisstuðningur þegar húsaleigukostnaður að frádregnum húsnæðisbótum er 60.000 kr. eða lægri
      • Leigjandi greiðir aldrei lægra en 60.000 kr. í húsaleigukostnað
Hefur það áhrif á upphæðina hversu mörg börn ég á?

Já, börn eru hluti af fjölda heimilismanna og því tekið er tillit til þeirra þegar reiknað er út réttur til sérstaks húsnæðisstuðnings.

Hvenær fæ ég sérstakan húsnæðisstuðning greiddan?

Greitt er út á fyrstu viku mánaðar.

Dæmi: Ef sótt er um í október, þá er greitt fyrir októbermánuð fyrstu vikuna í nóvember.

Er sérstakur húsnæðisstuðningur greiddur afturvirkt?

Nei.

Dæmi: ef sótt er um í október, þá er greitt fyrir októbermánuð fyrstu vikuna í nóvember.

Óheimilt er að greiða sérstakan húsnæðisstuðning lengra aftur í tímann, þrátt fyrir að leiga hafi hafist fyrr og leigusamningur liggur fyrir því til staðfestingar.

Þarf ég að borga skatt af sérstökum húsnæðisstuðningi?

Nei. Sérstakur húsnæðisstuðningur er undanþeginn skatti.

Hvenær þarf ég að endurnýja umsóknina?
  • Umsókn þarf að endurnýja á 12 mánaða fresti með því að sækja um að nýju inn á MittReykjanes. Send er inn ný umsókn og skilað inn nýjum gögnum.
  • Þegar skipt er um húsnæði eða leigusamningur endurnýjaður. Endurnýjun er gerð með því að senda inn nýja umsókn inn á MittReykjanes og skila nýjum gögnum.
Hvenær fellur sérstakur húsnæðisstuðningur niður?
  • Þegar leigusamningur fellur úr gildi
  • Þegar þú flytur frá Reykjanesbæ
  • Þegar umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning rennur úr gildi – mikilvægt er að endurnýja umsókn á 12 mánaða fresti
Hvað ef umsókninni minni er synjað?
  • Ef þér er synjað um sérstakan húsnæðisstuðning þá hefur þú rétt til að vísa málinu til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar. Þú hefur að hámarki fjórar vikur til að leggja inn beiðni til áfrýjunarnefndar.
  • Leggja má inn beiðni til áfrýjunarnefndar á MittReykjanes, undir Velferð er valið Beiðni til áfrýjunarnefndar
Hvað ef velferðarráð Reykjanesbæjar staðfestir synjun?
  • Þá átt þú rétt á að kæra niðurstöðuna til úrskurðarnefndar velferðarmála.
  • Þú hefur að hámarki þrjá mánuði til að skjóta ákvörðuninni til úrskurðarnefndar velferðarmála.