Nágrannasamfélög

Samvinna sveitarfélaga að hagsmunamálum Reykjaness

Á Reykjanesskaganum er fjöldi bæjarfélaga sem standa nálægt Reykjanesbæ. Bæjarfélögin eiga með sér samvinnu og samráð í hinum ýmsu málum og starfa þá undir hatti Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS).

Tilgangur SSS er að vinna að hagsmunamálum sveitarfélaganna og efla og styrkja samstarf þeirra. Í sameiginlegum málum komi það fram fyrir hönd sveitarfélaganna gagnvart ríkisvaldinu og öðrum. Skrifstofa SSS annast samræmingu á fjárhags- og framkvæmdaáætlun sameiginlegra rekinna fyrirtækja og stofnana s.s.:

Kalka - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf.
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
Brunavarnir Suðurnesja
Almannavarnanefnd Suðurnesja
Héraðsnefnd Suðurnesja

Sveitarfélög á Reykjanesi

Hér er hlekkur á stjórnsýsluvef sveitarfélagsins Garðs:
Sveitarfélagið Garður

Hér er hlekkur á stjórnsýsluvef sveitarfélagsins Grindavíkur:
Grindavík

Hér er hlekkur á stjórnsýsluvef sveitarfélagsins Sandgerðis:
Sandgerðisbær

Hér er hlekkur á stjórnsýsluvef sveitarfélagsins Voga:
Vogar

 

 

 

Fréttir