Fyrstu heimildir um uppfræðslu barna í Reykjanesbæ má rekja til ársins 1863 og var hún þá í formi heimiliskennslu.
Fyrsti barnaskólinn mun hins vegar hafa verið rekinn í Hákoti í Innri-Njarðvík 1876 - 77. Reglulegt skólahald hófst þó ekki fyrr en um 1887, en þá var kennt í Góðtemplarahúsinu í Keflavík.
Árið 1911 var tekið í notkun skólahúsnæði við Skólaveg og var það notað til kennslu allt til ársins 2000.
Grunnskólar
Í Reykjanesbæ eru nú starfandi sex grunnskólar: Myllubakkaskóli, Holtaskóli, Njarðvíkurskóli, Háaleitisskóli, Akurskóli og Heiðarskóli.
Skólarnir eru allir einsetnir en í kjölfarið var ráðist í miklar endurbætur og viðbyggingar við hina gömlu og rótgrónu skóla þannig að þeir yrðu viðbúnir þeim breytingum sem fyrirkomulag einstetningar hafði í för með sér. Allir skólarnir bjóða upp á heitan mat í hádeginu og býðst öllum nemendum frístundavist í skólunum eftir að hefðbundnu skólastarfi lýkur.
Leikskólar
Í Reykjanesbæ eru reknir 10 leikskólar: Garðasel, Heiðarsel, Hjallatún, Holt, Tjarnarsel og Vesturberg. Þrír eru reknir af einkaaðilum: Gimli, Akur, Háaleiti og Völlur.
Framhaldsskóli
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er staðsettur í Reykjanesbæ og hefur hann verið starfræktur síðan 1976. Nemendur eru að lang mestu leyti úr Reykjanesbæ og nágrannabyggðarlögunum.
Tónlistarskóli
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar var stofnaður árið 1999 en hann varð til við sameiningu Tónlistarskólans í Keflavík sem stofnaður var árið 1957 af Tónlistarfélagi Keflavíkur og Tónlistarskóla Njarðvíkur sem stofnaður var árið 1976.
Keilir - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs
Félagið var stofnað vorið 2007 og vísar heiti þess til stöðu Íslands í alþjóðavæddum heimi og þess markmiðs félagsins að byggja upp þekkingu, kennslu og rannsóknir á háskólastigi í alþjóðlegu samhengi. Keili er ætlað að byggja upp háskólasamfélag í gömlu herstöðinni og leiða þar saman fyrirtæki og háskóla, þekkingu og fjármagn, hvoru tveggja til nýsköpunar og útrásar í íslenskum menntamálum.
Miðstöð símenntunar
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, MSS, er sjálfseignarstofnun sem hefur það markmið að bjóða upp á fjölbreytt námsúrval sem þjóni fyrirtækjum, stofnunum, menntastofnunum og almenningi með því að samræma framboð endur- og símenntunar með auknum tengslum atvinnulífs og skóla.


.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







