Upplýsingavefur Reykjanesbæjar heldur utan um upplýsingar er varða starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins og leitast við að miðla þeim til íbúa, fjölmiðla og þeirra sem vilja kynna sér sveitarfélagið..
Markmið vefsins er:
Að auka upplýsingastreymi til íbúa Reykjanesbæjar
Vefurinn skal bjóða upp á umræðugrundvöll milli íbúa og embættismanna sveitarfélagsins. Hann skal gera stjórnkerfi Reykjanesbæjar skýrt og sýnilegt og auðvelda aðgengi að ákvarðanatöku í sveitarfélaginu. Hann skal stuðla að fjölbreyttari og betri þjónustu sveitarfélagsins.
Að auka upplýsingastreymi milli stofnana Reykjanesbæjar
Vefurinn skal vera lifandi miðill með virkri þátttöku starfsmanna til hagræðis fyrir stofnanir sem og íbúa.
Að kynna bæinn út á við
Vefurinn skal kynna þá starfsemi sem fram fer innan Reykjanesbæjar og hvað bæjarfélagið hefur upp á að bjóða. Hún skal nýtast m.a. til kynningar fyrir ferðamenn, fjárfesta, fjölmiðla og fjölskyldur sem hugsanlega vilja flytjast til bæjarins.
Leitast skal við að auka gagnvirkni vefsins og nýta þá möguleika sem upplýsingatækni býður til þess.
Ritstjórn
Riststjórn vefsins (vefur@reykjanesbaer.is) skal tryggja samræmingu í útgefnu efni, koma í veg fyrir mistök og sjá til þess að vefurinn sé uppfærður reglulega. Einnig ber ritstjórn ábyrgð á frekari þróun vefsins í samvinnu við þjónustuaðila.









.jpg?76x54;crop)

