Kennarar í Reykjanesbæ skoða skóla til að bæta námsárangur
Síðastliðinn þriðjudag lögðu 75 grunnskólakennarar á miðstigi úr grunnskólum í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði land undir fót og heimsóttu grunnskóla Þorlákshafnar til að kynna sér innra starf skólans, en undanfarin ár hafa nemendur þar skarað fram úr á landsvísu í samræmdum könnunarprófum.
Ferðin var liður í því að ná fram sameiginlegum markmiðum sem fram koma í framtíðarsýn Reykjanesbæjar um bættan námsárangur, en grunnskólar á Reykjanesi hafa sett sér það að bæta námsárangur verulega á næstu árum.
Afar vel var tekið á móti hópnum. Ferðin var að mati kennara sem fóru afar lærdómsrík og skemmtileg.
Á heimasíðu grunnskólans í Þorlákshöfn má finna skemmtilegar myndir frá heimsókninni.
https://picasaweb.google.com/110905487981139268263/HeimsoknKennaraUrSkolumIReykjanesb#

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)