Örn Bergsteinsson lætur af störfum
Örn Bergsteinsson, umjónarmaður fasteigna í Heiðarskóla, var kvaddur af samstarfsfólki, bæjarstjóra og starfsþróunarstjóra 7. júní s.l. eftir rúmlega 40 ára starf hjá bænum. Örn hóf störf árið 1969 í útkallsliði Slökkviliðs Keflavíkur og starfaði hjá Brunavörnum Suðurnesja til ársins 1999 þegar hann hóf störf í Heiðarskóla.
Bæjarstjóri flutti Erni þakkir fyrir vel unnin störf í þágu bæjarbúa í hófi sem haldið var honum til heiðurs í Heiðarskóla. Samstarfsfólk þakkaði honum einnig farsælt samstarf og að lokum var boðið upp á hlaðborð að hætti Heiðarskóla.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)