Starfar þú hjá fjölskylduvænu fyrirtæki ?

27. jan. 2012 11:42

27. janúar 2012 11:42

Starfar þú hjá fjölskylduvænu fyrirtæki ?

Í fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar er kveðið á um að árlega skuli veittar viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtækja í Reykjanesbæ.   Með því vill Reykjanesbær hvetja stjórnendur fyrirtækja til að setja sér fjölskyldustefnu.  Í ár verða slíkar viðurkenningar veittar í tíunda sinn en þegar hafa fjölmörg fyriræki hlotið nafnbótina " fjölskylduvænt fyrirtæki".

Óskað er eftir tilnefningum frá starfsmönnum fyrirtækja sem telja sinn vinnustað fjölskylduvænan.  Rökstuðningur starfsmanna og fjölskyldustefna fyrirtækisins þarf að fylgja með tilnefningunni. 

Fjölskyldu- og félagsmálaráð fer yfir tilnefningar og viðurkenningar verða veittar á degi um málefni fjölskyldunnar sem haldinn verður þann 25. febrúar 2012.

Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 8. febrúar til Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, merktar FJÖLSKYLDUVÆNT FYRIRTÆKI.  Einnig má senda tilnefningar með netpósti á netfangið fjolskylda@reykjanesbaer.is 

Fréttir