Sveitarfélagið Garður skrifar undir þjónustusamning

23. jan. 2012 15:03

23. janúar 2012 15:03

Sveitarfélagið Garður skrifar undir þjónustusamning

Bæjarstjórar Sveitarfélagsins Garðs og Reykjanesbæjar hafa endurnýjað  þjónustusamning Garðs við Reykjanesbæ. Undanfarin ár hefur Garður keypt af Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar ráðgjöf sem felur í sér rekstrarráðgjöf til skóla og sérfræðiþjónustu fyrir leik- og grunnskóla. Nýi samningurinn nær einnig til  þátttöku í verkefni um framtíðarsýn í skólamálum. Verkefninu er ætlað að bæta námsárangur á Suðurnesjum. Framtíðarsýnin felur meðal annars  í sér aukna samvinnu leikskóla, grunnskóla og foreldra. Þjónustusamningur þessi er tímabundinn til fimm ára og tekur gildi 1. janúar 2012. 

Fréttir