Bæjarlíf

Skemmtilegt lag eftir Harald Gíslason sem hann samdi um bæinn sinn Reykjanesbæ. Lagið heitir Bærinn minn, útsetning og spilun er í höndum Torfa Ólafssonar, trommur U.S. og Edgar Smári syngur.

Hér má sjá texann:

Bærinn minn

Hafnir, Njarðvík, Keflavík
Vinna saman og eru rík
Gæskan þar og ástin grær
Góður staður Reykjanesbær

Kappsamt fólk og fylgið sér
Flestir þeir sem búa hér
Okkur er hann öllum kær
Hinn eini sanni Reykjanesbær

Þetta er bærinn minn, svona er bærinn minn
Vertu velkominn, hingað í Reykjanesbæ

Þetta er bærinn minn, fallegi bærinn minn
Vertu velkominn, velkominn í Reykjanesbæ

Rúni Júll hérna rokkaði
Og Rúnturinn hann lokkaði
Unga fólkið ærslast og hlær
Æskan glöð og Reykjanesbær

Framtíð eiga fagra hér
Fjör í leik og starfi er
Ungur maður, yngismær
Ykkar bíður Reykjanesbær

Þetta er bærinn minn, svona er bærinn minn
Vertu velkominn, hingað í Reykjanesbæ

Fréttir