Beint í efni

Aðventugarðurinn

Aðventugarðurinn í Reykjanesbæ verður opinn fyrstu þrjár helgarnar í desember, laugardaga kl. 15–18 og sunnudaga kl. 13–16, auk Þorláksmessu kl. 18–21.

Í Aðventugarðinum geta íbúar og gestir átt saman notalegar stundir í aðdraganda jóla, notið jólaljósanna og stemningarinnar, yljað sér við eldstæðin og gætt sér á heitu kakói og sykurpúðum. Fjölbreyttir sölukofar og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna setja svo svip sinn á garðinn.

Það er tilvalið að bregða sér í bæjarrölt, koma við í Aðventugarðinum og njóta um leið þeirrar verslunar og þjónustu sem í boði er í miðbænum.

Komdu og njóttu aðventunnar með okkur!

Ævintýri og upplifanir

  • Kíkja á sölubásana

  • Fólk á skautasvelli í Reykjanesbæ

    Skella sér á skauta á Aðventusvellinu

  • jólasveinar og grýla að stilla sér upp með gestum aðventugarðsins

    Heimsækja jólasveinana og grýlu

  • Jólatónlist spiluð fyrir gesti í aðventugarðinum

    Hlusta á lifandi jólatónlist

  • Jólaljós í skrúðgarðinum í Keflavík vegna aðventugarðsins

    Skoða jólaljósin

  • Krakkar að grilla sykurpúða í aðventugarðinum

    Grilla sykurpúða og fá sér heitt kakó

  • Krakkar að taka þátt í ratleik í aðventugarðinum

    Taka þátt í jólaratleik

  • Krakkar að hlaupa í aðventugarðinum

    Bregða sér í bæjarrölt

Aðventugarðurinn - Reykjanesbær