Hjúkrunarheimilið Hlévangur við Faxabraut í Keflavík hefur nú opnað dyr sínar á nýjan leik eftir að hafa verið lokað um síðustu áramót.
Með samkomulagi Reykjanesbæjar og ríkisins hefur húsnæðið fengið nýtt hlutverk sem skammtímahjúkrunarheimili, þar sem markmiðið er að létta álagi á heilbrigðisþjónustu.
Þrír einstaklingar hafa þegar flutt inn á Hlévang og er gert ráð fyrir að þeim fjölgi á næstunni.
„Það er mikið ánægjuefni að sjá Hlévang opna aftur og vita að þar muni fólk fá þá umönnun og hlýju sem það á skilið. Ég vil þakka öllum þeim sem komu að verkefninu fyrir að hafa náð þessum mikilvæga áfanga á skömmum tíma,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Með starfseminni verður hægt að létta álagi af Landspítala og heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum, meðal annars vegna einstaklinga sem hafa beðið eftir hjúkrunarrými á annarri hæð sjúkrahússins í Keflavík.
Ríkið greitt kostnað við endurbætur
Reykjanesbær er eigandi húsnæðisins og hefur gert samning við ríkið um leigu þess til tveggja ára, með möguleika á framlengingu.
Samkomulagið gerir kleift að nýta húsnæðið áfram í þágu mikilvægrar heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að umfangsmiklum endurbótum á Hlévangi til að laga húsnæðið að nýju hlutverki.
Kostnaður við breytingarnar, ásamt kaupum á nýjum húsgögnum og rúmum, nemur á annað hundrað milljónum króna. Ráðuneytið stóð straum af kostnaði við endurbæturnar en rekstur heimilisins er fjármagnaður af heilbrigðisráðuneytinu og verður í höndum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Ráðherrar fögnuðu
Opnun Hlévangs var fagnað að viðstöddum Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra, Ingu Sæland félags- og barnamálaráðherra, Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra og fleiri aðilum sem komið hafa að verkefninu.
Vilhjálmur og ráðherrarnir lýstu ánægju með að tekist hefði að koma starfseminni af stað á skömmum tíma og hrósuðu þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmdum.
Prestarnir Fitz Jörgenson og Erla Guðmundsdóttir, sem bæði þjóna við Keflavíkurkirkju, voru viðstödd opnun endurbætts Hlévangs og blessuðu húsnæðið.
Áframhaldandi uppbygging hjúkrunarrýma í Reykjanesbæ
Uppbygging hjúkrunarrýma í Reykjanesbæ heldur áfram, en stefnt er að opnun nýs hjúkrunarheimilis á Ásbrú með 90 rýmum árið 2028. Það er ánægjulegt að sjá þann kraft sem er í samfélaginu.
