Tungumál til framtíðar: grunnur að læsi er samstarfsverkefni leikskólanna Vallar og Akurs í Reykjanesbæ. Verkefnið samanstendur af sex stuttum fræðslumyndböndum sem fjalla um málþroska ungra barna og þann mikilvæga grunn sem lagður er að læsi á fyrstu æviárunum.
Hugmyndin kviknaði út frá spurningunni: Hvernig getum við komið fræðslu um málþroska barna betur til foreldra? Markmiðið var að búa til efni sem væri stutt, aðgengilegt og hagnýtt og auðvelt að nýta í daglegu lífi.
Fjórir sérfræðingar komu að gerð myndbandanna: Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur, Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir, leikskólakennari, Sabína Steinunn Halldórsdóttir, sérfræðingur á sviði íþrótta- og heilsufræða, og Halldís Ólafsdóttir, talmeinafræðingur.
Í myndböndunum er fjallað um orðaforða, tvítyngi, söng og málþroska, hreyfingu, snuðnotkun og skjánotkun ungra barna.Myndböndin eru textuð á íslensku, ensku og pólsku til að gera fræðsluna aðgengilega fyrir sem flesta foreldra og fjölskyldur.
Verkefnið var kynnt í Hljómahöll 11. september. Þar hvöttu verkefnisstjórar skólasamfélagið til að nýta myndböndin og deila þeim áfram, bæði með foreldrum og starfsfólki leik- og grunnskóla.
Jafnframt var vakin athygli á þeirri öflugu þróunarvinnu sem fram fer í leik- og grunnskólum Reykjanesbæjar og mikilvægi þess að skapa vettvang þar sem verkefni eru kynnt og þekkingu og reynslu er miðlað áfram.
Hvetjum öll að kynna sér mynböndin á heimasíður Reykjanesbæjar undir Foreldrafræðsla.

